Hoppa yfir valmynd
31. maí 2023 Utanríkisráðuneytið

Hundruð barna hafa látið lífið í átökunum í Súdan

Ljósmynd frá Súdan: UNICEF - mynd

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, segir að 13,6 milljónir barna í Súdan þurfi á mannúðaraðstoð að halda nú þegar gríðarhörð átök hafa geisað í landinu í sex vikur. Talsmaður UNICEF segir að hundruð barna hafi látið lífið og þúsundir til viðbótar særst á þessum tíma. Ekki sé þó hægt að staðfesta þær tölur, sökum þess hversu hörð átökin eru. 

Í frétt á vef UNICEF segir að stofnunin hafi þó lyft grettistaki við þessar erfiðu aðstæður og haldi áfram að veita börnum þá aðstoð sem þau þurfa á að halda.

Meðal þess sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur áorkað ásamt samstarfsaðilum undanfarið er að:

  • flytja 2.300 tonn af hjálpargögnum til flóttafólks í Madani og héraða víðs vegar um landið. Meðal annars sjúkragögn, næringu, vatn, hreinlætisþjónustu og námsgögn.
  • viðhalda bólusetningarverkefnum í 12 héruðum með því að útvega og dreifa bóluefnum og viðhalda flutningsleiðum. Að minnsta kosti 244 þúsund börn hafa fengið bólusetningu við lömunarveiki síðan átök hófust 15. apríl síðastliðinn.
  • hafa haldið 80 prósent næringarmiðstöðva starfhæfum um allt land fyrir börn sem glíma við alvarlega vannæringu.
  • dreifa miklu magni af næringarríku jarðhnetumauki, sjúkra- og hreinlætisgagna til ríflega 300 munaðarlausra barna í Khartoum sem án aðstoðar eru dauðvona vegna næringarskorts.
  • útvega 104 þúsund einstaklingum aðgengi að hreinu vatni með vatnsflutningabílum, viðhaldi og starfrækslu vatnsveitukerfa.
  • veita hið minnsta 5.500 börnum og forráðamönnum sálræna aðstoð. Viðhaldið og starfrækt 356 námsmiðstöðvar í 10 ríkjum, þar á meðal í Vestur-Darfur, og tryggt tæplega 17 þúsund stúlkum og drengjum barnvænt og öruggt svæði til að stunda nám og leika sér.

Ástandið dauðadómur ef ekkert er að gert 

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kallar eftir auknu fjármagni til að mæta þeim lífsnauðsynlegu verkefnum sem börn í Súdan þurfa á að halda. James Elder, talsmaður UNICEF, var ómyrkur í máli á blaðamannafundi í dag.

„Allar þær ógnir sem að súdönskum börnum steðja eiga þær á hættu að verða dauðadómur. Ég biðst forláts á því segja hlutina svo hreint út, en tími er lúxus sem börn í Súdan búa ekki við. Ef ég orða hlutina öðruvísi þá er ég að svíkja þann ískyggilega raunveruleika sem þau búa við,“ segir Elder.

„Það er einnig mikilvægt að það komi afdráttarlaust fram að skilvirkasta leiðin til að tryggja öryggi og velferð þessara barna liggur í höndum þeirra sem ber lagaleg skylda til að vernda þau. UNICEF krefst þess því enn einu sinni að stríðandi fylkingar axli ábyrgð og verndi súdönsk börn og hlífi nauðsynlegum grunninnviðum sem þau reiða sig á til að lifa.“


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum