Hoppa yfir valmynd
27. maí 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Bláskelin: óskað eftir tilnefningum fyrir plastlausa lausn

Umhverfisstofnun hefur auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2020. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu.

Viðurkenningin er hluti af aðgerðum umhverfis- og auðlindaráðherra til að draga úr neikvæðum áhrifum plastnotkunar. Henni er ætlað að draga fram það sem vel er gert og hvetja til nýsköpunar. Sérstök úthlutunarnefnd velur viðurkenningarhafa en hana skipa fulltrúar frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtökum iðnaðarins, Plastlausum september og Umhverfisstofnun.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við val á verðlaunahafa er horft til eftirfarandi þátta:

  • nýsköpunargildis viðkomandi lausnar
  • dregur lausnin úr myndun úrgangs
  • hvert er almennt framlag lausnarinnar til umhverfismála
  • hvaða plastvöru er verið að komast hjá með lausninni
  • hefur lausnin möguleika á að komast í almenna notkun

Tillögur skulu berast Umhverfisstofnun eigi síðar en 1. júlí næstkomandi, merktar „Tilnefning: Bláskelin“ á netfangið [email protected] eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Umhverfis- og auðlindaráðherra mun veita viðurkenninguna þann 5. september 2020, á opnunarhátíð árvekniátaksins Plastlaus september.

Nánar um Bláskelina.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum