Hoppa yfir valmynd
27. september 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 455/2019 úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. september 2019 er kveðinn upp svo hljóðandi

úrskurður nr. 455/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19060010

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. júní 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. maí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. janúar 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 25. janúar 2019 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 26. febrúar 2019, kom fram að kæranda hefði verið veitt viðbótarvernd á Ítalíu og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 20. september 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 25. mars 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 20. maí 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 21. maí 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. júní 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. júní 2019 ásamt fylgigögnum. Kærunefnd bárust þann 24. og 28. júní, 12. júlí, 3. og 26. september 2019 frekari upplýsingar og gögn.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi orðið fyrir skotárás í heimaríki og þá hafi menn sem hafi leitað að honum myrt móður hans. Kærandi hafi flúið til Líbíu og þar í landi hafi hann verið handsamaður af mannræningjum og hafður í haldi þeirra um þriggja mánaða skeið. Við komuna til Ítalíu hafi kærandi verið [...] ára gamall. Kærandi hafi búið í flóttamannabúðum fyrir fullorðna og þar hafi hann orðið fyrir ofbeldi. Síðar hafi hann dvalið í móttökumiðstöðvum SPRAR en hafi svo verið vísað þaðan. Í kjölfarið hafi hann sofið í almenningsgörðum eða yfirgefnum húsum. Kærandi hafi reynt að fá aðstoð félagsþjónustunnar en án árangurs. Kærandi hafi fengið vinnu á veitingahúsi um skeið en annars verið atvinnulaus. Á Ítalíu óttist kærandi nígerísku mafíuna og hópa fíkniefnasala sem hafi reynt að fá hann til að vinna fyrir sig. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu vegna framangreinds enda hafi hann áður hringt í lögreglu án þess að þeir hafi brugðist við. Jafnframt óttist kærandi að verða sendur frá Ítalíu til heimaríkis. Einnig hafi kærandi greint frá andlegri vanlíðan sem hann hafi glímt við um langt skeið og hafi hann verið með sjálfsvígshugsanir á Ítalíu vegna aðstæðna sinna þar og öryggisleysis. Jafnframt hafi kærandi greint frá því að á Ítalíu hafi hann fengið læknisaðstoð vegna augnvandamála og skotsára á líkama hans. Kærandi finni fyrir verkjum í fótlegg og augum. Á Ítalíu hafi kærandi fengið heilbrigðisaðstoð þar til hann hafi þurft að yfirgefa SPRAR móttökumiðstöðvarnar.

Kærandi vísar til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar hvað varðar aðstæður og réttindi einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu og vísar jafnframt til nýlegrar skýrslu Human Rights Watch þar sem dregin sé upp dökk mynd af aðstæðum í landinu.

Í greinargerð eru gerðar ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi telur m.a. að Útlendingastofnun hafi vanrækt rannsóknarskyldu sína með því að leggja til grundvallar að óljóst hafi verið hvort hann hefði leitað eftir aðstoð yfirvalda á Ítalíu í stað þess að spyrja hann nánar út í það. Þá mótmæli kærandi þeirri niðurstöðu Útlendingastofnunar að honum standi til boða húsnæðisúrræði á Ítalíu. Jafnframt telur kærandi það ámælisvert að Útlendingastofnun hafi ekki svarað kröfu hans um sálfræðimat. Að auki mótmælir kærandi því mati Útlendingastofnunar að hann sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en svo virðist sem Útlendingastofnun hafi ekki lagt til grundvallar alla frásögn hans við það mat. Að lokum gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á grundvelli 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum. Þannig sé í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga gerð krafa um alvarlega mismunun en í athugasemdum með frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 sé einungis talað um mismunun. Kærandi telur að þær kröfur sem Útlendingastofnun leggi til grundvallar varðandi heilsufar hans og mat á sérstökum ástæðum ekki hafa stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar non-refoulement reglu þjóðaréttar, sem sé m.a. lögfest í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi telur að lýsingar hans á aðstæðum sínum á Ítalíu komi heim og saman við heimildir um aðstæður þar í landi, t.a.m. varðandi heilbrigðisþjónustu og upplifun flóttamanna af óöryggi. Með vísan til þessa telur kærandi að aðstæður flóttafólks á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi telur að ákvörðun um að endursenda hann til Ítalíu muni þar að auki brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að sérstakar ástæður eigi við í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og úrskurða kærunefndar útlendingamála. Af úrskurðum kærunefndar megi ráða að stjórnvöld þurfi við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við að kanna hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, svo sem vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna eða vegna almennra aðstæðna þar í landi. Kærandi telur, með vísan til þess sem að framan hafi verið rakið, að það sé margt sem gefi til kynna að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærandi ólíklegt að hann geti fengið fullnægjandi meðferð við veikindum sínum í viðtökuríki.

Kærandi vísar einnig til þess að hann hafi orðið fyrir mismunun og fordómum á Ítalíu. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi upplifað sig mjög óöruggan á Ítalíu og hafi leitað til lögreglu vegna áreitis af hendi nígerísku mafíunnar og fíkniefnasala en lögreglan hafi ekki aðstoðað hann. Kærandi vísar til þess að í lögskýringargögnum að baki 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga komi fram að megi umsækjandi eiga von á því að verða mismunað í viðtökuríki, svo sem vegna kynþáttar eða kyns, geti verið fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans. Kærandi hafi átt mjög erfitt uppdráttar á Ítalíu og telur að verði hann endursendur til Ítalíu sé fullvíst að aðstæður hans verði verulega síðri en staða almennings þar í landi. Með vísan til framangreinds telur kærandi að í máli hans séu uppi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt viðbótarvernd á Ítalíu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 20. september 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] einhleypur og barnlaus karlmaður. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur fram að hann sé almennt heilbrigður en hafi kvartað yfir verkjum, m.a. sársauka í augum, fótlegg og enni. Þá komi fram að kærandi glími við svefnerfiðleika og kvíða og sé haldinn streitu.

Kærandi hafi óskað eftir því að hitta sálfræðing og samkvæmt komunótu Göngudeildar sóttvarna, dags. 28. ágúst sl., hafi kærandi hafið sálfræðimeðferð hjá sálfræðingi deildarinnar.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);• Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, desember 2017);
  • Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Labour market integration of asylum seekers and refugees – Italy (European Commission, apríl 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu þjóðarstofnunar í heilbrigðis-, innflytjenda- og velferðarmálum (í. Istituto Nazionale Salute, Migrazioni e Povertá, vefsíða: www.inmp.it);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/);
  • Upplýsingar af vefsíðu SPRAR (í. Sistema di Protezione per Richiedenti Asilio e Rifugati - https://www.sprar.it/) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Samkvæmt framangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar, fylgdarlausum börnum og þeim sem hafa dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum þó einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum.

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi en hafa, líkt og ítalskir ríkisborgarar, rétt á aðstoð þeirri sem vinnumiðlanir veita. Þá hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti er í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að skráningin í heilbrigðiskerfið falli ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins stendur en að í framkvæmd geti einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Í skýrslu Asylum Information Database kemur þó fram að mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að íbúar landsins geti leitað aðstoðar yfirvalda óttist þeir tiltekna einstaklinga eða telji þeir brotið á réttindum sínum. Þá hefur ítalska lögreglan fullnægjandi úrræði til að rannsaka þau mál sem leitað er til hennar með.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu að aðstæður flóttafólks á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kærenda verði synjað um efnismeðferð. 

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda en hann kveðst m.a. hafa upplifað fordóma á Ítalíu auk þess sem hann hafi ekki fengið aðstoð frá ítölskum stjórnvöldum er varðar húsnæði, atvinnu, eða framfærslu þar í landi. Framangreindar skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að kærandi, sem handhafi viðbótarverndar, hafi aðgang að vinnumarkaði og sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og ítalskir ríkisborgarar. Þótt skýrslur um aðstæður á Ítalíu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Kærandi er vinnufær karlmaður og telur kærunefnd ekki að einstaklingbundnar aðstæður hans séu þess eðlis að önnur sjónarmið eigi að gilda í málinu en að framan hafa verið rakin.

Í framangreindum gögnum kemur jafnframt fram að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að stemma stigu við fordómum í landinu, m.a. með því að grípa til hertra aðgerða til að sporna við brotum sem byggjast á kynþáttafordómum. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár ítalskra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að velferðarþjónustu á vegum ítalska ríkisins og ríkisborgarar Ítalíu. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að einstaklingar með alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér fullnægjandi aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Það er því mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 17. janúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir í greinargerð sinni við málsmeðferð Útlendingastofnunar, einkum hvernig stofnunin hagar mati sínu á viðkvæmri stöðu hans og hvernig stofnunin beitir reglugerð um útlendinga í málinu.Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 16. janúar 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 17. janúar 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum