Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2012

Atvinnuástandið: „Komin langleiðina,“ segir forsætisráðherra

Atvinnuleysi júní 2012
Atvinnuleysi júní 2012

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi í júní síðastliðnum hafi verið 4,8% en það er hið minnsta frá því haustið 2008.  Þetta er jafnframt um 2 prósentustigum minna atvinnuleysi en á sama tíma í fyrra. Þess má geta að fyrir hvert prósentustig sem úr atvinnuleysi dregur minnka útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs um 3 milljarða króna á ársgrundvelli eða sem svarar 250 milljónum króna á mánuði. Á móti koma útgjöld vegna vinnumarkaðsúrræða sem stjórnvöld gripu til vegna fjármálakreppunnar. Fram kemur í gögnum Vinnumálastofnunar að í júní síðastliðnum hafi 1.551 manns notið vinnumarkaðsúrræða, þar af 1.384 í gegn um  átakið Vinnandi vegur. Um 170 til viðbótar nutu annarra úrræða sem greidd eru af Atvinnuleysistryggingarsjóði.

Í yfirlýsingu forsætisráðherra og fjármálaráðherra um framgang stöðugleikasáttmálans, sem gerður var árið 2009 við aðila vinnumarkaðarins, var miðað við að atvinnuleysi yrði ekki meira en 4 – 5% í árslok 2013 þ.e. við lok gildistíma kjarasamninga.

„Mikið fagnaðarefni“

„Þetta er ákaflega mikið fagnaðarefni og bætir enn þá jákvæðu mynd sem hvarvetna blasir við í efnahags og atvinnumálum. Þett sýnir  mikinn kraft í atvinnulífinu og að við erum á réttri leið  -  lífskjör fara batnanadi og atvinnulífið er á uppleið,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. 

„Aðgerðir ríkisvaldsins í atvinnumálum og vinnumarkaðsaðgerðum eru að skila sér, atvinnuvegafjárfesting að taka við sér enda er hér mun meiri hagvöxtur en víðast hvar í löndum sem við berum okkur saman við. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að atvinnuleysi hefur farið niður um nær tvö prósentustig frá sama tíma í fyrra. Ég er mjög ánægð með að sjá hvað atvinnuleysið á Suðurnesjum, sem verið hefur hvað mest, minnkar hratt.  Við erum komin langleiðina með að ná þeim markmiðum sem sett voru í stöðugleikasáttmálanum 2009 bæði að því er varðar atvinnuleysi og fjárfestingar,“ segir Jóhanna ennfremur.

Samkvæmt nýlegri spá Hagstofunnar hækkar hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu í 15,2% á þessu ári og í 16% á því næsta. Með fyrirliggjandi fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar má gera ráð fyrir að hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu verði 19,1% á árinu 2014. Hefur hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu þá hækkað um 4% á tveimur árum.

Batnandi ástand á Suðurnesjum

Dregið hefur úr atvinnuleysi hröðum skrefum undanfarna mánuði samkvæmt gögnum Vinnumálastofnunar, en það var 7,3% í febrúar síðastliðnum. Í júní í fyrra mældist atvinnuleysi 6,7% eða svipað og það var í mars og apríl á þessu ári.

Atvinnuleysi er minna á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Það nam 3,5% í júní en var á sama tíma 5,5% á höfuðborgarsvæðinu.

Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 838 að meðaltali og konum um 284.

Umtalsvert hefur dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum, en þar hefur það verið mest á landinu öllu undanfarin misseri. Það var 7,5% í júni og hafði lækkað úr 9,4% í maí síðastliðnum.

Engar hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júní síðastliðnum.


Atvinnuleysi júní 2012

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum