Hoppa yfir valmynd
19. október 2018 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði 2019 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá því í september 2018 um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2019, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Á grundvelli frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2019 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 4.961,4 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum fyrirfram upphæð sem nemur 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.976,8 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaga á árinu 2019 fer fram í júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2018, álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2019 og veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2019.

Áætlað fasteignaskattsframlag 2019

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum