Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2017 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 609/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. nóvember 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 609/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17090029

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. september 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. ágúst 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Frakklands.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 1. mgr. 36. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara krefst kærandi þess að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 30. apríl 2017, ásamt bróður sínum. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni þann 30. apríl 2017 kom í ljós að fingraför hans höfðu hvergi verið skráð. Þar sem kærandi var með vegabréfsáritun til Frakklands var þann 11. maí 2017 send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 16. maí 2017 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 17. ágúst 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Frakklands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 18. september 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 27. september 2017 ásamt fylgigögnum. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að tjá sig við nefndina um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Viðbótargögn í máli kæranda bárust m.a. þann 4., 11., 13. og 16. október 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Frakklands. Lagt var til grundvallar að Frakkland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Frakklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar, varðandi sérstök tengsl, kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki dvalið áður á Íslandi og því hafi hann ekki ríkara tengsl við landið en Frakkland að því leyti. Þá var horft til þess að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt bróður sínum. Einnig hafi stofnunin litið til þess að íslenska ríkið hefur gert samning um að fylgja Dyflinnarreglugerðinni og að í g-lið 1. mgr. 2. gr. hennar komi fram að systkini teljist ekki til aðstandenda í skilningi reglugerðarinnar. Einnig taldi stofnunin unnt að hafa 78. gr. laga um útlendinga til hliðsjónar en engar leiðbeiningar né nánari skýringar á hugtakinu ættingi sé að finna í lögunum eða greinargerð með þeim. Þá vísaði stofnunin til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 397/2017 þar sem fram komi að lögskýringagögn gefi ekki til kynna að ætlunin hafi verið að byggja túlkun 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga á 78. gr. sömu laga. Jafnframt komi fram að hugtakið sérstök tengsl í skilningi 2. mgr. 36. gr. geti ekki takmarkast við þá þröngu skýringu á orðinu aðstandendur sem finna megi í 2. mgr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Framangreint mál hafi verið tekið til efnismeðferðar á grundvelli heildstæðs mats á sérstökum tengslum kæranda við landið og sérstökum aðstæðum hans. Í máli kæranda liggi fyrir að hann og systir hans séu í samskiptum og hafi lýst yfir vilja til að búa í grennd við hvort annað. Systir kæranda og mágur hans séu tilbúin að veita kæranda þann allan þann stuðning sem hann þurfi við að koma undir sig fótunum hér á landi. Ekki hafi að öðru leyti komið fram að kærandi og systir hans séu háð hvort öðru eða búi við heilsubresti og þarfnist umönnunar. Var það mat Útlendingastofnunar að tengsl kæranda við landið væru ekki svo sérstök að ástæða væri til að beita 2. mgr. 36. gr. útlendingalaga í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er fjallað ítarlega um ástæður flótta hans frá heimaríki. Varðandi athugasemdir kæranda við að verða endursendur til Frakklands kemur fram að hann óttist um líf sitt verði hann sendur þangað. Hann eigi enga ættingja né vini í Frakklandi og því engin sérstök tengsl við landið líkt og hann eigi hér á landi. Kærandi hafi ekki haft hug á að sækja um alþjóðlega vernd í Frakklandi heldur hafi smyglarar sótt um vegabréfsáritun fyrir hans hönd á fölskum forsendum. Hafi þeir lagt fram fölsuð gögn um fjárhagsstöðu kæranda og fleira án hans vitundar. Kærandi óttist að verða sendur frá Frakklandi til [...] þar sem hans bíði dómur fyrir að hafa snúist til [...]. Kærandi kveðst hafa sterk tengsl við Ísland þar sem systir hans og mágur séu búsett hér á landi. Kærandi hafi ávallt verið mjög náinn systkinum sínum. Jafnframt hafi kærandi haldið miklu og sterku sambandi við systur sína eftir að hún fékk alþjóðlega vernd hér á landi. Þá þjáist kærandi af andlegri vanlíðan vegna atburða sem hann hafi upplifað í heimaríki, [...].

Kærandi byggir á því í greinargerð sinni að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna sem mæli fyrir um grundvallarregluna um non-refoulement. Þá kveði c-liður 1. mgr. 36. gr. laganna einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Verði ekki fallist á að endursending kæranda til Frakklands brjóti gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, auk annarra sambærilegra ákvæða alþjóðasamninga og íslenskra laga um bann við ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, byggir kærandi á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar annars vegar vegna sérstakra tengsla hans við landið og hins vegar sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna við ákvæðið.

Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, einkum að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að frönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Frakklands er byggt á því að kærandi hafi fengið útefna vegabréfsáritun til Frakklands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga teljast einstaklingar vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu ef þeir, vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða þeir geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum þessum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og tengsl hans við landið

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, m.a. ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því.

Við túlkun ákvæða 36. gr. laga um útlendinga tekur kærunefnd fram að hin almenna regla sem kemur fram í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er sú að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar. Ef skilyrði a- til c-liðar eru fyrir hendi er heimilt að víkja frá þeirri meginreglu og synja um efnismeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Þó skal taka umsókn til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum sem fylgdu 36. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 80/2016 kemur fram að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Í framkvæmd kærunefndar hefur verið lagt til grundvallar að mat á því hvort rétt sé að taka umsókn til efnismeðferðar vegna 2. mgr. 36. gr. laganna feli í sér heildstætt mat á þeim atriðum sem fallið geta undir sérstök tengsl og sérstakar ástæður í skilningi ákvæðisins.

Kærandi kvaðst í viðtali við Útlendingastofnun þann 5. júlí 2017 hafa sérstök tengsl við Ísland þar sem hann eigi systur og mág hér á landi. Þá lýsti kærandi yfir vilja í framangreindu viðtali til að fá að vera hér á landi hjá systur sinni. Í greinargerð kæranda kemur fram að systir hans, [...], sé búsett hérlendis og gift [...] manni sem hafi búið hér um [...] ára skeið. Þá kvaðst systir kæranda hafa verið óvinnufær þar til bræður hennar komu til landsins m.a. vegna áhyggna af þeim og lagði fram staðfestingu frá Vinnumálastofnun, dags. 25. september 2017, þar sem fram kemur að hún hafi snúið aftur á atvinnumarkað þann 29 . júní 2017.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að af hálfu stofnunarinnar teljist staðfest að kærandi eigi systurina [...] sem sé búsett hér á landi. Vísar stofnunin til samanburðar á umsókn sem systir kæranda lagði fram hjá stofnuninni þremur árum áður og gögnum sem kærandi lagði fram en þar komi fram sama nafn föður og uppgefið heimilisfang. Þá hefði systir kæranda óskað eftir að hann fengi búsetuúrræði nær henni.

Þann 4. október 2017 bauð kærunefnd kæranda og bróður hans að leggja fram gögn til staðfestingar á tengslum þeirra við [...], sem að þeirra sögn væri systir þeirra. Kærandi lagði m.a. fram gögn þann 13. október 2017. Meðal þeirra voru afrit af fæðingarvottorðum þeirra og ljósmyndir af kenniskírteinum. Þann 16. október lagði kærandi fram afrit af kenniskírteinum foreldra sinna. Við meðferð málsins lagði kærandi fram læknisvottorð, dags. 23. september 2017, þess efnis að systir kæranda stríddi við þunglyndi annars vegar vegna [...] og hins vegar vegna áhyggna af öryggi fjölskyldu sinnar og aðskilnaði við hana. Sérstaklega hefði systir kæranda áhyggjur af þeim hættum sem bræður hennar stæðu frammi fyrir.

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal taka umsókn til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Eins og að framan greinir kemur fram í athugasemdum sem fylgdu 36. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 80/2016 að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Þar kemur jafnframt fram að með sérstökum tengslum sé m.a. annars verið vísa til tilfella þegar umsækjendur eiga ættingja á Íslandi en ekki í því landi sem þeir yrðu sendir aftur til.

Kærunefnd hefur lagt mat á þau gögn sem kærandi hefur lagt fram og telur þau trúverðug. Kærunefnd telur að gögn málsins sýni fram á að kærandi eigi systur hér á landi. Þá kemur fram í gögnum að systkinin séu [...] talsins og öll stödd hér á landi. Kærandi eigi ekki ættingja í Frakklandi svo vitað sé auk þess sem viðtökusamþykki franskra stjórnvalda sé byggt á því að kærandi hafi fengið vegabréfsáritun þangað og hann hafi því ekki enn sótt um vernd þar í landi.

Í máli kæranda liggja fyrir gögn um ættartengsl hans, [...] og [...]. Í ljósi aðstæðna kæranda og bróður hans telur kærunefnd útlendingamála ekki rétt að aðskilja mál bræðranna. Þar sem mál bróður kæranda hefur verið tekið til efnismeðferðar sbr. úrskurð kærunefndar nr. [...] er það mat kærunefndar, með vísan til forsendna í úrskurði í máli bróður kæranda, að þrátt fyrir að staðfesting franskra stjórnvalda á ábyrgð þeirra á kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd liggi fyrir þá séu tengsl kæranda og bróður hans við landið svo sérstakar að í þessu tilviki sé nærtækast að taka mál kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi. Beri því eins og hér háttar sérstaklega til að flytja ábyrgð á efnislegri meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd yfir á íslensk stjórnvöld á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate of Immigration shall examine the merits of the application of the applicant for asylum in Iceland.

 

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                                                        Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum