Hoppa yfir valmynd
27. október 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Mikilvægi menntunar fyrir jafnrétti og byggðaþróun

Frá Byggðaráðstefnunni 2021 á Hótel Kötlu í Mýrdal.  - myndByggðastofnun
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði Byggðaráðstefnuna 2021 í morgun en tilgangur hennar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri byggðaþróun. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var „Menntun án staðsetningar?“

„Við sjáum nú víða um land hvernig fólk er sífellt að átta sig betur á þeim miklu verðmætum og gæðum samstarfs sem við eigum allt í kringum okkur og tengjast landinu okkar, sögu og menningu. Þessi verðmæti eru ekki einungis huglæg, þau eru sömuleiðis atvinnu- og tekjuskapandi fyrir byggðir landsins,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Jafnrétti til náms og jöfn tækifæri eru mikilvæg leiðarstef nýrrar menntastefnu sem samþykkt var á Alþingi í vor: „Menntun þjóðarinnar allrar og jöfn tækifæri til náms óháð búsetu á að vera sameiginlegt keppikefli allra samfélaga því menntun er lykillinn að farsæld til framtíðar. Ég vil raunar ganga svo langt að staðhæfa að hærra menntunarstig þjóðarinnar allrar kemur til með að verða sá lykill framfara sem veitir okkur það forskot sem fámennri þjóð er nauðsynleg til að takast á við helstu áskoranir framtíðar á sviði sjálfbærni og loftslagsbreytinga og jafnframt viðhalda öflugu velferðarkerfi á öllum sviðum,“ sagði ráðherra.

Að ráðstefnunni stóðu Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og Mýrdalshreppur en hún er mikilvægur vettvangur fólks úr háskólum, stjórnsýslu, sveitastjórnum og annarra sem áhuga hafa á byggðaþróun og menntamálum. Upptöku frá ráðstefnunni verður hægt að nálgast á vef Byggðastofnunar.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum