Hoppa yfir valmynd
29. september 2014 Forsætisráðuneytið

Kristján Ingi Jónsson og Einar Bogi Sigurðsson - Umsögn um fyrstu áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar

Ágæta stjórnarskrárnefnd,
ég vil nota tækifærið og þakka fyrir áfangaskýrslu ykkar frá því í júní s.l. 

Með henni má nokkuð glöggva sig á vinnu nefndarinnar og hvaða tökum ríkjandi stjórnvöld virðast ætla að taka stjórnarskrármálið.

Ég vek athygli á því að það sem þið hafið verið að gera síðan nefndin var skipuð hefur verið gert ótal sinnum áður og liggur sú vinna fyrir. Á síðasta kjörtímabili var þjóðin öll kölluð að borðinu og eftir þá ágætu vinnu liggur fyrir frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Það frumvarp hefur verið borið undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem stærstur hluti kjósenda lýsti sig fylgjandi því að tillögur stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Það frumvarp var svo fullunnið á vettvangi Alþingis og ekkert eftir að gera nema samþykkja það og lögfesta.

Það er óásættanlegt að farið sé aftur á byrjunarreit í þessu máli og vilji kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu sé hafður að engu. Eina leiðin til að bjarga því sem eftir er af virðingu Alþingis og stjórnmálastéttarinnar er að sjá til þess að þjóðin fái sem fyrst þá nýju stjórnarskrá sem kallað hefur verið eftir.

Með kveðju,
Kristján Ingi Jónsson 
Einar Bogi Sigurðsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum