Hoppa yfir valmynd
30. september 2014 Forsætisráðuneytið

Ólafur Sigurðsson - Umsögn um fyrstu áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar

Svo vill til að ég og fleiri hafa þegar kosið um tillögur Stjórnlagaráðs,sú kosning var samkvæmt ósk Alþingis.Aldrei hef ég tekið þátt í kosningum á Íslandi sem ekki hafa verið virtar (fæddur 1953).Það er búið að kjósa um tillögur Stjórnlagaráðs gott fólk og vinna ykkar í nefndinni sem er ætlað að breyta orðnum hlut hlýtur að vinna gegn meirihlutavilja þjóðarinnar samkvæmt kosningu sem fór fram 20. október 2012. Þið eruð því ekki í umboði þjóðarinnar og er rétt að þið áttið ykkur á því. Þið eruð þarna vegna þeirra hagsmuna sem ekki vilja nýja stjórnarskrá gegn vilja þjóðarinnar samkvæmt niðurstöðum fyrrnefndra kosninga. Vera ykkar í nefnd sem ætlar að ganga gegn vilja þjóðarinnar verður ætíð minnst sem hermdarverks gegn lýðræðinu í landinu. 

Breytingar á því ferli sem ný stjórnarskrá er í - er í andstöðu við vilja kjósenda og er hreinlega andlýðræðisleg aðgerð og um leið árás á lýðræðið í landinu.

Vinsamlegast sýnið okkur, fólkinu í landinu þá lágmarsvirðingu að hér sé lýðræði ríkjandi sem Lýðveldið Ísland byggir stjórnskipan sína á.

Kveðjur,
Ólafur Sigurðsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum