Hoppa yfir valmynd
30. desember 2008 Dómsmálaráðuneytið

Viðar Már Matthíasson skipaður varadómari við Hæstarétt Íslands

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að tillögu Hæstaréttar Íslands, skipað Viðar Má Matthíasson prófessor til að vera varadómari í Hæstarétti Íslands frá 1. janúar 2009.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að tillögu Hæstaréttar Íslands, skipað Viðar Má Matthíasson prófessor til að vera varadómari við Hæstarétt Íslands frá 1. janúar 2009. Viðar Már situr sem varadómari í tímabundnu leyfi Páls Hreinssonar hæstaréttardómara, en Páll gegnir starfi formanns rannsóknarnefndar samkvæmt lögum nr. 142/2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum