Hoppa yfir valmynd
30. desember 2008 Dómsmálaráðuneytið

Umsóknarfrestur um embætti sérstaks saksóknara framlengdur til 12. janúar nk.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur framlengt til 12. janúar nk. umsóknarfrest um embætti sérstaks saksóknara.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur framlengt til 12. janúar nk. umsóknarfrest um embætti sérstaks saksóknara.

Saksóknarinn mun veita forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti skv. lögum nr. 135/2008 sem samþykkt voru á Alþingi 10. desember 2008. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. febrúar 2009, eða svo fljótt sem verða má.

Fyrri umsóknarfresti lauk 29. desember sl. og sótti enginn um starfið.

Sjá fréttatilkynningu frá 12. desember 2008.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum