Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýsing um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.

Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:

  • Verkefni og rannsóknir sem vinna gegn fordómum og auka fjölmenningarlega færni.
  • Verkefni og rannsóknir sem vinna að félagslegri virkni meðal innflytjenda.
  • Verkefni og rannsóknir sem stuðla að bættri stöðu innflytjenda á vinnumarkaði.

Önnur verkefni koma einnig til álita.

Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 12 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki 75% af heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er aðgengilegt á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis. Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna.

Nánari upplýsingar fást í félags- og tryggingamálaráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected] 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum