Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2007 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins í Osló

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 054

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hélt nú í morgun utan til Osló til að sækja utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í dag og á morgun.

Fundurinn er óformlegur vorfundur utanríkisráðherra þar sem meðal annars Afganistan og eldflaugavarnir verða til umræðu, sem og málefni Balkanskaga og stækkun Atlantshafsbandalagsins.

Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins munu einnig funda með utanríkisráðherra Rússlands í NATO Rússlandsráðinu og með utanríkisráðherra Úkraínu í samstarfsráði bandalagsins og Úkraínu.

Í kvöld situr utanríkisráðherra kvöldverð í boði norska utanríkisráðherrans þar sem rætt verður um Kósóvó og Miðausturlönd.

Í tengslum við utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins mun utanríkisráðherra ennfremur undirrita samkomulag um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála og viðbúnaðar milli Íslands og Noregs, og yfirlýsingu um samstarf um öryggis- og varnarmál og almannavarnir milli Íslands og Danmerkur.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum