Hoppa yfir valmynd
12. júní 2018 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2018 til 30. júní 2019

Þriðjudaginn 5. júní 2018 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2018 til 30. júní 2019.

Samtals bárust fjórtán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og  alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust tólf gild tilboð í tollkvótann.

Sjö tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 245.000 kg á meðalverðinu 208 kr./kg.  Hæsta boð var 411 kr./kg en lægsta boð var 10 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg á meðalverðinu 371 kr./kg.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 150.000 kg á meðalverðinu 56 kr./kg.  Hæsta boð var 559 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 64.000 kg á meðalverðinu 127 kr./kg.

Tvær umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 10.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.

Sjö tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 208.000 kg á meðalverðinu 243 kr./kg.  Hæsta boð var 520 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 341 kr./kg.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 17.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.

Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 204.000 kg á meðalverðinu 527 kr./kg.  Hæsta boð var 650 kr./kg en lægsta boð var 200 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 608 kr./kg.

Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 39.000 kg á meðalverðinu 11 kr./kg.  Hæsta boð var 40 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 39.000 kg á meðalverðinu 6 kr./kg. Tollkvóti er 76.000 kg.

Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 152.000 kg. á meðalverðinu 485 kr./kg. Hæsta boð var 730 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á meðalverðinu 625 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

35.000

Ekran ehf

15.000

Innnes ehf

30.000

Garri ehf

9.000

Sælkeradreifing ehf

6.000

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Ekran ehf.

1.000

Garri ehf

28.000

Kjötmarkaðurinn ehf

10.000

Krónan ehf

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf

5.000

Samkaup sf


Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Ekran ehf

4.000

Garri ehf

19.000

Innnes ehf

8.000

Krónan ehf

6.000

Nautica ehf

12.000

Reykjagarður ehf

 

Smjör fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf.

2.000

Krónan ehf

10.000

Nautica ehf

 

Ostur fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

60.000

Aðföng hf

50.000

Ekran ehf

1.400

Garri ehf

7.600

Krónan ehf

 

Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf

20.000

Innnes ehf

1.000

Krónan ehf

13.000

Ölgerðin ehf

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2018 - júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

31.500

Aðföng

5.000

Ekran ehf

20.000

Innnes ehf

5.000

Krónan ehf

4.500

Nautica ehf

20.000

Sælkeradreifing ehf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum