Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 48/2019 úrskurður 7. ágúst 2019

Mál nr. 48/2019                     Millinafn:       Vatneyrr

                                                Millinafn:       Vatneyr

 

 

Hinn 7. ágúst 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2019 en erindið barst nefndinni 14. júní.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 2. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslenskumáli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Vatneyrr hefur nefnifallsendingu, -r, og fullnægir þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

Millinafnið Vatneyr telst dregið af íslenskum orðstofni, örnefninu Vatneyri. Það hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Millinafnið Vatneyr uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um millinafnið Vatneyrr er hafnað.

Beiðni um millinafnið Vatneyr er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum