Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 35/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 20. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 35/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110005

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. nóvember 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. október 2022, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Af greinargerð kæranda verður ráðið að kærandi krefjist þess að henni verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefjist kærandi þess að henni verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjist kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 16. nóvember 2021. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 2. desember 2021 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun dags. 13. júní 2022 synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Með úrskurði nr. 300/2022, dags. 18. ágúst 2022 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnunar að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar. Með ákvörðun, dags. 20. október 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 2. nóvember 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 16. nóvember 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi. Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og henni skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar, dags. 17. desember 2021, og kæru í eldra máli kæranda og maka hennar, dags. 6. júlí 2022 sem og gagna málsins að öðru leyti.

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi ítrekað orðið fyrir kynferðisofbeldi í Kólumbíu, bæði af hálfu tengdra aðila sem og glæpamanna. Andleg heilsa hennar sé bágborin og hún geti ekki snúið aftur til heimaríkis. Í greinargerð kemur fram að Útlendingastofnun hafi lagt ríka áherslu á að kærandi leggi fram gögn eða geti sýnt fram á það með öðrum hætti að hún sé sérstakt skotmark glæpahópa í heimaríki sínu umfram aðra. Kærandi hafi sannarlega lagt fram gögn sem staðfesti að hún hafi kært það kynferðisofbeldi sem hún hafi orðið fyrir. Þá hafi kærandi átt um verulega sárt að binda til margra ára eftir þá lífsreynslu og hafi lagt fram skýrslur sálfræðinga máli sínu til stuðnings. Kærandi hafi auk þess lagt fram bréf með kæru þessari þar sem hún leitist við að útskýra fyrir kærunefnd það ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir og hvaða áhrif það hafi haft á líf hennar. Kærandi hafi við meðferð málsins, bæði fyrir Útlendingastofnun og fyrir kærunefnd, vísað til fjölda skýrslna um ástandið í Kólumbíu með tilliti til starfsemi glæpahópa. Kærandi ítreki að hún hafi ekki getað leitað aðstoðar og verndar yfirvalda í Bógóta í Kólumbíu. Ljóst sé að ógnarstjórn glæpasamtaka og aðgerðarleysi löggæsluyfirvalda sé í Kólumbíu. Erfitt sé fyrir konur í sömu eða svipaðri stöðu og kærandi að snúa aftur til heimaríkis þar sem þær fái ekki viðeigandi vernd yfirvalda. Alþjóðlegar skýrslur veiti ótvíræðar heimildir fyrir því að glæpa- og morðtíðni í Kólumbíu sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið.

Með kæru til kærunefndar fylgir bréf kæranda þar sem hún rekur þau kynferðisbrot sem hún hafi verið beitt. Kærandi byggir á því að hún sé bersýnilega í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Lögreglan og önnur yfirvöld veiti borgurum í Kólumbíu ekki vernd og séu oft í slagtogi við glæpahópa. Sem kona hafi hún færri tækifæri, úrræði, völd og áhrif en karlmenn í heimaríki. Konur séu auk þess í meiri hættu á að verða fyrir misnotkun, kúgun eða ofbeldi. Kærandi hafi verið í sálfræðimeðferð hér á landi vegna bágrar andlegrar heilsu. Í skýrslu sálfræðings á Göngudeild sóttvarna komi fram að kærandi hafi alvarleg einkenni þunglyndis og kvíða, sé í aukinni sjálfsvígshættu og upplifi einkenni áfallastreitu.

Kærandi byggir aðalkröfu sína um að henni verði veitt alþjóðleg vernd á því að hún eigi á hættu ofsóknir og ofbeldi í heimaríkinu. Hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1.-4. mgr. 38. gr. laganna. Kærandi hafi í tvígang verið beitt kynferðisofbeldi af meðlimum glæpahóps, í fyrra skiptið hafi aðilarnir beitt hana kynferðisofbeldi undir því yfirskyni […] og í […]. Í kjölfarið hafi kærandi og sambýlismaður hennar flúið. Lögreglan sé tengd glæpahópum og beiti konur kynferðisofbeldi. Kærandi hafi því ekki kært brotið á meðan hún hafi búið í landinu þar sem hún hafi óttast að það gerði illt verra. Þá kveður kærandi að í höfuðborginni, Bógóta, hafi glæpastarfsemi og ofbeldi aukist verulega á síðustu misserum og megi rekja aukninguna til atvinnuleysis, fátæktar og sálrænna og menningarlegra afleiðinga Covid 19-heimsfaraldursins. Lögreglan sé undirmönnuð og geti ekki mætt öryggisþörfum almennings. Útlendingastofnun byggi á því að til staðar séu lög í Kólumbíu sem stuðli að jafnrétti og réttlæti fyrir konur og að bann sé lagt við ofbeldis- og kynferðisbrotum og að brotamenn geti átt yfir höfði sér þunga dóma fyrir brot gegn konum. Lagasetning hafi enga þýðingu ef lögunum sé ekki fylgt. Kærandi hafnar því að hún hafi raunhæfa möguleika á skilvirkri vernd kólumbískra yfirvalda. Kærandi byggir varakröfu sína um að henni verði veitt viðbótarvernd á því að hún eigi á hættu að sæta áfram ómannúðlegri meðferð. Nauðgunarbrot og misnotkun í garð kvenna séu á meðal þeirra ódæðisverka sem framin séu af glæpahópum í Kólumbíu. Kærandi krefst þess til þrautavara að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til umfjöllunar um heilbrigðisástæður og sérstaklega erfiðra félagslegra aðstæðna hennar. Þá byggir kærandi á því að flutningur innan Kólumbíu yrði hvorki raunhæf né sanngjörn krafa vegna útbreiðslu glæpa á vissum svæðum í landinu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Kærandi telur að með endursendingu hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi m.a. framvísað kólumbísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2021/2022 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
  • Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 19. apríl 2022);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 18. nóvember 2022);
  • Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
  • Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 21. desember 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • Freedom in the World 2022 - Colombia (Freedom House, 2022);
  • World Report 2020 – Events of 2019 (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hét hann því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi innleitt lög um að gera opinbera spillingu refsiverða. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.

Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu Freedom House fyrir árið 2021, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim var slitið árið 2018.

Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2021 kemur fram að almennir borgarar hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliða- og glæpahópa. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir ofangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi framlengt umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Þá hafi stjórnlagadómstóllinn framlengt umboð sannleiks- og sáttanefndarinnar til 27. júní 2022.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2021 kemur fram að kólumbíska ríkislögreglan hafi í nóvember árið 2021 ráðist að mótmælendum í landinu sem hafi mótmælt breytingum á skattalöggjöf og morðum á mannréttindaaðgerðarsinnum. Dregið hafi úr mótmælum í kjölfar Covid-19 faraldursins en hinn 28. apríl 2021 hafi þúsundir manns tekið þátt í mótmælum vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalöggjöf. Stjórnvöld hafi dregið umræddar tillögur til baka en mótmæli hafi haldið áfram og tengst óánægju mótmælenda á mörgum sviðum, s.s. atvinnuleysi, versnandi efnahagsástandi í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, ójöfnuði, glæpatíðni o.fl. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafi fordæmt alvarleg ofbeldisbrot í landinu. Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2021 kemur fram að mannréttindabrot af hendi lögreglunnar í mótmælunum hafi leitt til kerfisbreytinga og í desember 2021 hafi þingið samþykkt umbótapakka (e. reform package) til að styrkja agaviðurlög vegna brota lögreglumanna í starfi. Í skýrslunni kemur fram að lögregluyfirvöld og ríkissaksóknari hafi hafið rannsókn á öllum ásökunum um ofbeldi lögreglu og óhóflegri valdbeitingu.

Í framangreindri skýrslu Freedom House kemur fram að friðarsamkomulagið sem undirritað var árið 2016 milli ríkisstjórnarinnar og FARC skæruliðahópsins hafi haldist óbreytt á árinu. En tafir á framkvæmd samkomulagsins og afvopnun fyrrverandi uppreisnarmanna hafi vakið áhyggjur eftirlitsaðila. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett var á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í. 

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 14,3% árið 2021 og hefur aukist verulega frá árinu 2019 en minnkað frá árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefnd Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.

Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að um 8 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.

Í skýrslu kanadísku innflytjendastofnunarinnar kemur fram að kynbundið ofbeldi sé útbreitt í Kólumbíu. Ofbeldi gegn konum og nauðganir, þ. á m. nauðganir í hjónaböndum, séu vandamál í landinu. Í skýrslunni kemur fram að ofbeldi gegn konum hafi aukist í Covid 19-heimsfaraldinum en að löggjöf í landinu kveði á um jöfn réttindi kvenna. Í skýrslu Freedom House kemur fram að um 20 prósent þingsæta í hverri þingdeild sé í höndum kvenna og varaforseti Kólumbíu sé kona. Löggjafinn hafi um árabil hunsað réttindi kvenna en árið 2021 hafi verið samþykkt lög sem ætlað sé m.a. að bæta félagslegar og efnahagslegar aðstæður kvenna. Í framangreindum skýrslum kemur fram að kólumbísk stjórnvöld hafi fullgilt alla gildandi alþjóðasamninga er lúti að mannréttindum og réttindum kvenna og ríkið hafi náð þýðingarmiklum framförum varðandi þróun löggjafar sem styðji jafnrétti kynjanna og mannréttindi kvenna. Sem dæmi um það hafi verið sett lög árið 2014 til að bæta aðgengi þolenda kynferðisofbeldis að réttvísi. Mismunun og ofbeldi gagnvart konum og refsileysi gerenda í slíkum málum sé þó vandamál í ríkinu. Konur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, m.a. kynferðisofbeldi, í tengslum við átök tengd glæpastarfsemi og baráttu stjórnvalda við glæpahópa í landinu. Kólumbísk lög leggi skyldu á kólumbísk stjórnvöld að veita þolendum heimilisofbeldis tafarlausa vernd gegn frekara ofbeldi, hvort sem það sé líkamlegt eða andlegt. Þá kveði kólumbísk lög á um 21 til 50 ára fangelsisvist fyrir kynbundin morð á konum (e. femicide) sem sé talsvert þyngri refsing heldur en við morðum af öðrum ástæðum, sem varði að lágmarki 13 ára fangelsisvist. Sérstök kynferðisbrotadeild, Sexual Assault Investigative Unit, sem heyri undir kólumbísk stjórnvöld, hafi það hlutverk að rannsaka kynferðisbrotamál. Umdæmisritari í málefnum kvenna í Bógóta í Kólumbíu, auk skrifstofu umboðsmanns þar í landi, veiti endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og bjóði upp á námskeið fyrir opinbera starfsmenn um framkomu við þolendur kynbundins ofbeldis.

Í skýrslu fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um kynferðislegt ofbeldi í Kólumbíu, komi fram að Covid 19-heimsfaraldurinn hafi gert aðgengi að þjónustu og stuðningi erfiðari á svæðum þar sem glæpahópar séu virkir. Sem hluti af viðleitni stjórnvalda til að tryggja aðgang viðkvæmra hópa að þjónustu hafi sumar stofnanir boðið upp á viðtöl og stuðning í gegnum fjarfundarbúnað. Kynferðisbrotadeildin (e. The National Victims´ Unit) hafi innleitt áætlanir sem lúti að skaðabótum og sálfélagslegri endurhæfingu fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Heilbrigðisráðuneytið hafi þjálfað 22.516 heilbrigðisstarfsmenn í samræmi við bókun (e. protocol) um alhliða heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þá hafi forseti Kólumbíu gefið út leiðbeiningar um eflingu kynjajafnréttis í öryggissveitum með það að markmiði að bæta gæði og skilvirkni í tengslum við kynferðislegs og kynbundins ofbeldis. Í skýrslu kanadíska innflytjendayfirvalda kemur fram að hægt sé að fá aðstoð og stuðning vegna kynbundins ofbeldis hjá kynferðisbrotadeild (s. Centro de Atención Integral a Víctimas de Delitos Sexuales) á skrifstofu saksóknara (s. Fiscalía), hjá lögregluyfirvöldum sem vísi málum til saksóknara. Skrifstofa fjölskyldumálastjóra taki á móti heimilisofbeldismálum og geti gert verndarráðstafanir, svo sem að fjarlægja ætlaðan árásarmann af heimilinu, sækja nauðsynjar fyrir þolanda á heimilinu, fá lögregluvernd og leysa tímabundið mál varðandi forsjá og meðlag. Þá sé stofnun um velferð fjölskyldunnar (s. Instituto Colombiano de Bienestar Familiar) sem vinnur að alhliða velferð barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra, sem hafi svæðisbundnar fjölskyldumiðstöðvar í öllum borgum. Skrifstofa umboðsmanns verndi mannréttindi bæði þolenda og gerenda þegar um ofbeldi sé að ræða, m.a. með því að veita einstaklingum ráðgjöf og aðstoð. Í skýrslunni kemur fram að starfræktar séu neyðarlínur, þar sem hægt sé að tilkynna kynbundið ofbeldi sem séu opnir allan sólarhringinn.

Samkvæmt skýrslu samtakanna Freedom House frá mars 2022 standi konur frammi fyrir mismunun á vinnumarkaði og verði fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustöðum. Stjórnlagadómstóll Kólumbíu hefur áréttað skyldu fyrirtækja til að bregðast við og refsa fyrir kynbundið ofbeldi á vinnustað. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að lög leggi bann við hvers kyns áreitni á vinnustað og mæli jafnframt fyrir um eins til þriggja ára fangelsisvist fyrir slík brot.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu á að sæta ofsóknum í heimaríki af hálfu glæpahóps sem sé afsprengi FARC. Meðlimir glæpahópsins hafi krafið kæranda og maka hennar um greiðslu fjárhæða í tengslum við rekstur fyrirtækis maka hennar. Kæranda og maka hennar hafi ekki reynst unnt að greiða fjárkúgurum upphæðirnar og hafi þeir brugðist við með að beita þau ofbeldi og beitt kæranda kynferðisofbeldi í tvígang.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi þegar hún hafi verið […] til […] ára gömul af […] […] síns og sumum sem hafi verið […]. Þegar hún hafi verið […] ára og […] ára hafi henni verið nauðgað. Kærandi hafi greint frá því að meðlimir glæpahóps hafi reynt að kúga fé út úr henni og kærasta hennar. Kærandi hafi greint frá atviki þar sem þeir hafi barið kærasta hennar og hótað þeim lífláti ef þau myndu leita til lögreglunnar. Þeir hafi káfað á kynfærum hennar undir því yfirskyni […] í […] nauðgað henni. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglunnar vegna þess að hún hafi talið að hún myndi ekki aðstoða og að það myndi gera illt verra. Eftir komu hingað til lands hafi hún sent tölvubréf til ríkissaksóknara þar sem hún hafi lagt fram kæru vegna þessara atvika.

Kærandi hefur lagt fram gögn til stuðnings umsókn sinni, m.a. tölvubréf til kólumbísku lögreglunnar vegna kynferðisofbeldis og fjárkúgana, dags. 20. nóvember 2021.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Með vísan til framgreindra upplýsinga um heimaríki kæranda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi orðið fyrir fjárkúgunum og kynferðisofbeldi af hálfu glæpahópa í heimaríki. Þá verður frásögn kæranda af því kynferðisofbeldi sem hún kveðst hafa sætt af hálfu annarra aðila í heimaríki hennar m.a. […] ekki dregin í efa. Kærandi hefur greint frá því að hún hafi ekki leitað til lögreglu í heimaríki sínu vegna þessa ofbeldis. Þá hafi hún aðeins sent kæru til lögreglu eftir komuna hingað til lands vegna fjárkúgana og ofbeldisins sem hún kveðst hafa sætt af hálfu glæpahóps, í fyrirtæki kærasta síns síðla árs 2021.

Samkvæmt upplýsingum í viðtali við kæranda var hún búsett í Bógóta í Kólumbíu. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum þar í landi, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í Bógóta í Kólumbíu að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda. Kærandi lagði fram gögn til kærunefndar sem benda til þess að kólumbísk lögregluyfirvöld hafi tekið á móti kvörtun hennar vegna framangreindra atburða. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður kvenna í Kólumbíu gefi til kynna að staða þeirra geti verið erfið, m.a. vegna kynbundins ofbeldis þar í landi þá er það mat kærunefndar, með vísan til framangreindra heimilda og umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu, að þær aðstæður nái ekki því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Hefur við það mat m.a. verið horft til þess að í landinu eru til staðar úrræði í réttar- og félagslega kerfinu fyrir konur sem verði fyrir kynferðisofbeldi, öðru ofbeldi eða mismunun. Þá vinni stjórnvöld að því að bæta stöðu kvenna með ýmsum aðgerðum, s.s. lagasetningu og gerð aðgerðaráætlana sem ætlað er að vernda konur og veita þeim aðgang að nauðsynlegum úrræðum. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leggja grunn að staðhæfingum hennar um að þar til bær yfirvöld í heimaríki hafi ekki eða muni ekki aðhafast frekar í málinu. Það er mat kærunefndar að á öruggum svæðum í Kólumbíu, þ. á m. í Bógóta þar sem kærandi kveðst hafa haft búsetu, geti yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi íbúa. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpahópa séu slík í Bógóta að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn þeim athöfnum sem kærandi telur að sér stafi hætta af, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda í heimaríki sínu, telji hún þörf á því.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997). 

Kærandi vísar til þess að hún sé í hættu vegna glæpahóps sem hafi áreitt hana og beitt ofbeldi í Kólumbíu. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunna að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Bógóta, er það mat kærunefndar að það sé bæði raunhæft og sanngjarnt að kærandi geti sest að í Kólumbíu, t.a.m. í Bógóta, þar sem stjórnvöld fari með stjórnartaumana. Er það jafnframt mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði henni gert að snúa til Kólumbíu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt henni fullnægjandi vernd. Kærandi telur m.a. ljóst að hún geti ekki lifað öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi og hefndaraðgerðum í heimaríki sínu og að ástand mannréttindamála þar í landi sé slæmt og félagslegar aðstæður bágbornar. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að almennar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans. Þá kemur fram í framangreindum athugasemdum við lagafrumvarpið að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni.

Kærandi hefur lagt fram heilsufarsgögn þar sem fram kemur að hún hafi glímt við þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og kvíða. Þá hafi skimun gefið til kynna að kærandi glími við einkenni áfallastreitu. Þá hefur kærandi greint frá því að hún sé barnshafandi. Líkt og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum Kólumbíu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu. Í boði sé geðheilbrigðisþjónusta fyrir kæranda en slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem glími við andleg veikindi þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi hefur lýst því að hún hafi ítrekað verið beitt kynferðisofbeldi í Kólumbíu. Hún hefur einnig greint frá því að hún sé barnshafandi. Hún óttist óöryggið og hættuna í heimaríki sínu.

Kærunefnd telur að þrátt fyrir þær raunir sem kærandi hefur þurft að þola í heimaríki sé hún almennt heilsuhraust, auk þess sem hún hafi lokið háskólanámi og eigi kærasta sem jafnframt sé barnsfaðir hennar. Þá á hún ættingja í heimaríki. Er það mat kærunefndar að kærandi sé fær um að framfleyta sjálfri sér og njóti auk þess stuðnings fjölskyldu í heimaríki. Kærandi hefur jafnframt aðgang að félagslegu kerfi í Kólumbíu auk þess sem henni stendur til boða stuðningur og úrræði í heimaríki vegna þess kynferðislega ofbeldis sem hún hafi verið beitt. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hún verði ekki send áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 16. nóvember 2021 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hennar um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hún verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum