Hoppa yfir valmynd
22. maí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 180/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 22. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 180/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19120027

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. desember 2019 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. nóvember 2019, um að synja henni um dvalarleyfi fyrir foreldra, sbr. 1. mgr. 69. gr. og 72. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi var síðast með dvalarleyfi fyrir foreldra með gildistíma til 13. mars 2019. Þann 8. febrúar 2019 sótti kærandi um endurnýjun á því dvalarleyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. nóvember 2019, var umsókn kæranda synjað. Umboðsmanni kæranda var tilkynnt um ákvörðunina þann 25. nóvember sl. og þann 9. desember sl. kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála en kæru fylgdu athugasemdir. Frekari athugasemdir og fylgigögn bárust frá kæranda dagana 10. janúar og 10. og 12. febrúar sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til þess að kærandi hafi verið með dvalarleyfi á grundvelli 72. gr. laga um útlendinga þar sem sonur hennar hafi verið með dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61. gr. laganna. Vísaði Útlendingastofnun til þess að með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 19. nóvember 2019, hefði umsókn sonar kæranda um endurnýjun á dvalarleyfi verið synjað. Gæti kærandi því ekki leitt rétt sinn af syni sínum, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar að synja umsókn kæranda. Bæri kæranda að yfirgefa landið innan 30 daga frá móttöku ákvörðunarinnar. Tekið var fram að ólögmæt dvöl gæti leitt til brottvísunar og endurkomubanns, sbr. 98. gr. og 101. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru og viðbótarathugasemdum byggir kærandi á því að ákvörðun í máli sonar hennar sé ólögmæt og að ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli hans, þar sem honum hafi verið synjað um atvinnuleyfi, sé nú til meðferðar hjá félagsmálaráðuneytinu. Vísar kærandi til þess að þar sem félagsmálaráðuneytið hafi þann 7. febrúar sl. fallist á kröfu sonar hennar um að fresta réttaráhrifum fyrrgreindrar ákvörðunar Vinnumálastofnunar á meðan málið sé til efnislegrar meðferðar í ráðuneytinu, beri að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar. Af kæru og öðrum athugasemdum má jafnframt leiða að kærandi óski þess að kærunefnd bíði með að úrskurða í málinu þar til félagsmálaráðuneytið hafi lokið stjórnsýslukæru í máli sonar hennar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 69. gr. laga um útlendinga er kveðið á um skilyrði dvalarleyfis vegna fjölskyldusameiningar. Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laganna getur nánasti aðstandandi íslensks eða annars norræns ríkisborgara sem er með fasta búsetu hér á landi eða útlendings sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis skv. 61., 63., 70., 73., 74. og 78. gr. eða ótímabundins dvalarleyfis skv. 58. gr. með umsókn fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar að fullnægðum skilyrðum 55. gr. og VIII. kafla. Þá er fjallað um dvalarleyfi fyrir foreldra í 72. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið með útgefið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 72. gr. laga um útlendinga þar sem sonur hennar var með útgefið dvalarleyfi hér á landi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61. gr. laganna. Synjun Útlendingastofnunar í máli kæranda byggir á því að þann 19. nóvember 2019 hafi umsókn sonar kæranda um endurnýjun á dvalarleyfi verið synjað. Gæti kærandi því ekki leitt rétt sinn af syni sínum, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga.

Með úrskurði kærunefndar, dags. 20. maí 2020, var ákvörðun Útlendingastofnunar í máli sonar hennar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál hans til nýrrar meðferðar þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli hans væri til meðferðar hjá félagsmálaráðuneytinu og að ráðuneytið hefði fallist á beiðni um frestun réttaráhrifa skv. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þar sem umsókn kæranda byggir á réttindum sonar hennar til dvalar hér á landi verður ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda jafnframt felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál hennar til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                                  Daníel Isebarn Ágústsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum