Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2014 Forsætisráðuneytið

Jafnréttisviðurkenning 2014: Óskað eftir tilnefningum

Jafnréttisráð
Jafnréttisráð

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2013. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.

Í ár verða veittar tvær viðurkenningar: Ein til fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunar og önnur til einstaklings, hóps eða félagasamtaka. Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með. Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Jafnréttisviðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að taka á móti fulltrúum Jafnréttisráðs, veita þeim upplýsingar og svara spurningum.

Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 13. febrúar 2014 til Jafnréttisráðs, á heimilisfangið Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, eða með tölvupósti á netfangið: [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum