Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2014 Utanríkisráðuneytið

Samstarf við Fulbright stofnunina á sviði norðurslóðafræða

Snjór og bárujárn.

Utanríkisráðuneytið og Fulbright stofnunin hafa gert með sér samstarfssamning um fræðimannastyrki á sviði norðurslóðamála. Með samningnum styrkir utanríkisráðuneytið komu bandarískra fræðimanna til kennslu og rannsókna á sviði norðurslóðafræða við menntastofnanir á Íslandi næstu þrjú ár.

Málefni norðurslóða eru ein meginstoðin í utanríkisstefnu Íslands. Meðal forgangsatriða í stefnu stjórnvalda er að stuðla að aukinni þekkingu á málefnum norðurslóða með rannsóknum og störfum fræðimanna.

„Ríkisstjórnin leggur áherslu á að styrkja tengslin vestur um haf og það er ánægjulegt að með þessu samkomulagi tökum við lítið, en mikilvægt, skref að því að efla vísinda- og fræðasamstarf í málum sem varða hagsmuni beggja ríkja,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Utanríkisráðherra segir það gagnkvæman vilja ríkjanna að styrkja tengslin á þessu sviði meðal annars með því að miðla enn frekar þekkingu og reynslu í sameiginlegum hagsmunamálum. „Samstarfssamningurinn mun efla menntastofnanir á Íslandi og styrkja þær sem áhugaverðan valkost fyrir nemendur og fræðimenn á alþjóðavettvangi. Við erum mjög ánægð að geta unnið með Fulbright stofnuninni að þessum málum í ljósi þess mikilvæga starfs sem stofnunin hefur unnið áratugum saman“ segir Gunnar Bragi.

Gert er ráð fyrir að árlega komi bandarískur fræðimaður til starfa við íslenskan háskóla þar sem hann muni stunda fræðistörf og kennslu auk þess að sinna almennu kynningarstarfi á norðurslóðafræðum eins og kostur er.

Fulbright á Íslandi hefur verið starfrækt síðan 1957, samkvæmt tvíhliða samningi Íslands og Bandaríkjanna. Markmið stofnunarinnar er að greiða fyrir samstarfi ríkjanna á sviði mennta, vísinda og lista. Frá upphafi hefur Fulbright stofnunin veitt styrki til 900 Íslendinga og 500 Bandaríkjamanna. Sjá lista yfir styrkþega síðustu ára  og núverandi styrkþega á heimasíðu Fulbright stofnunarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum