Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2022 Utanríkisráðuneytið

Hjálparstarf hafið í Malaví í kjölfar ofsaveðurs

Ljósmynd: Malaví24 - mynd

Hjálparstarf er hafið á vegum stofnana Sameinuðu þjóðanna í Malaví til aðstoðar við þúsundir íbúa sem misstu heimili sín í veðurofsanum af völdum heitabeltisstormsins Ana í síðustu viku. Talið er að um hundrað manns hafi farist í ofveðrinu og flóðunum sem því fylgdi, þar af 33 í Malaví.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur þegar veitt fimmtán þúsund íbúum stuðning, einkum í því skyni að bæta hreinlæti og afstýra þannig vatnsbornum sjúkdómum eins og kóleru. Enn fremur hefur Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) ákveðið að verja rúmum 60 milljónum króna til að bregðast við neyðinni.

Lazarus Chakwera forseti Malaví segir að þörf sé á meiri stuðningi en forsetinn lýsti yfir neyðarástandi í síðustu viku. Um eitt hundrað þúsund íbúar Malaví eru á hrakhólum eftir veðurofsann og talið er að skemmdir hafa orðið á tæplega 200 þúsund heimilum. Héruðin sem urðu verst úti voru Chikwawa, Mulanje, Nsanje og Phalombe.

Að sögn Ingu Dóru Pétursdóttur forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongwe hefur borist beiðni um stuðning frá samstarfshéraði Íslands, Mangochi, en beðið er eftir sameiginlegu ákalli frá ríkisstjórn Malaví og stofnunum Sameinuðu þjóðanna sem væntanlega verður birt næstkomandi mánudag.

Mannfall af völdum stormsins var mest á Madagaskar þar sem að minnsta kosti 48 fórust. Um 20 manns létu lífið í Mósambík.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum