Hoppa yfir valmynd
13. október 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

4,5 milljarðar í eflingu hringrásarhagkerfis og úrbætur í fráveitumálum

Gert er ráð fyrir 1,7 milljarði króna í þágu hringrásarhagkerfisins í fjármálaáætlun 2021-2025 með sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar, en fyrir var 100 m.kr. árleg fjárveiting til sömu verkefna. Áhersla er lögð á aðgerðir sem ýta undir ábyrga framleiðslu og neyslu, að  draga úr sóun, auka endurvinnslu og endurnýtingu og halda verðmætum í umferð eins lengi og hægt er. Á næsta ári fer hálfur milljarður til þessara verkefna.

„Efling hringrásarhagkerfisins var ein af mínum megináherslum þegar ég settist í stól ráðherra og er það enn. Til þess að styðja við innleiðingu þess þarf að beita ýmsum stjórntækjum s.s. hvötum til grænnar nýsköpunar og fræðslu. Ég mun leggja fram frumvarp í vetur sem skyldar sérsöfnun úrgangs en setur líka þær skyldur á okkar herðar að hætta að urða lífrænan úrgang. Þannig drögum við úr sóun og úr losun gróðurhúsalofttegunda, en úrgangsmál eru líka mikilvæg loftslagsmál“, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Í fjármálaáætlun 2021-2025 er jafnframt gert ráð fyrir að 2,8 milljörðum verði varið til úrbóta í fráveitumálum á tímabilinu í sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar. Þá hefur 200 milljónum króna verið varið til fráveituframkvæmda í ár en kveðið er á um átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 800 milljónum króna verður varið í fráveituframkvæmdir á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2021.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum