Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2022 Matvælaráðuneytið

Umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina framlengdur til 28. apríl 2022

 Umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina framlengdur til 28. apríl 2022 - myndistock/zefirchik06

Matvælaráðuneytið vekur athygli á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er framlengdur til 28. apríl 2022. Opnað verður fyrir umsóknir í Afurð (www.afurd.is), stafrænu stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins síðar í vikunni. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni. Þróunarfé nautgriparæktar var aukið um 30 milljónir króna fyrir árið 2022.

Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falli undir það að vera ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum