Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Umsækjendur um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana

Samtals bárust 22 umsóknir um stöður forstjóra sameinaðra heilbrigðisstofnana í þremur heilbrigðisumdæmum sem taka til starfa 1. október næstkomandi. Umsóknarfrestur rann út 1. ágúst.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði verða sameinaðar undir heitinu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Umsækjendur um stöðu forstjóra eru fjórir:

  • Bjarni Kr. Grímsson, verkefnastjóri
  • Gerður Björk Sveinsdóttir, skrifstofustjóri
  • Gunnar Alexander Ólafsson, verkefnastjóri
  • Þröstur Óskarsson, forstjóri

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðisstofnanirnar á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Umsækjendur um stöðu forstjóra eru átta:

  • Anna Sigurbjörg Gilsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
  • Bjarni Kr. Grímsson, verkefnastjóri
  • Guðlaug Gísladóttir, viðskiptastjóri
  • Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri
  • Herdís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
  • Jóhann F. Friðriksson, framkvæmdastjóri
  • Jón Helgi Björnsson, forstjóri
  • Jónas Vigfússon, fv. sveitarstjóri

 

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnanir Suðausturlands, Suðurlands og í Vestmannaeyjum verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Umsækjendur um stöðu forstjóra eru 10:

  • Bjarni Kr. Grímsson, verkefnastjóri
  • Drífa Sigfúsdóttir, fv. rekstrarstjóri
  • Elís Jónsson, rekstrarstjóri
  • Guðlaug Einarsdóttir, verkefnastjóri
  • Guðmundur Sævar Sævarsson, hjúkrunardeildarstjóri
  • Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri
  • Harpa Böðvarsdóttir, sviðsstjóri
  • Herdís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
  • Valbjörn Steingrímsson, forstjóri
  • Þröstur Óskarsson, forstjóri

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum