Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2018 Utanríkisráðuneytið

Kynningarfundur og samtal um ráðgjafaverkefni á sviði fiskimála í samstarfi við Alþjóðabankann

Þriðjudaginn 13. febrúar næstkomandi mun þróunarsamvinnuskrifstofa utanríkisráðuneytisins kynna fyrirhugaðan stuðning við fiskiverkefni Alþjóðabankans og mögulega aðkomu íslenskra aðila, á morgunverðarfundi í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, Garði-suður og Garði-norður. Fundurinn hefst klukkan 9:00.

Í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands hefur  um árabil verið lögð áhersla á stuðning við fiskimál og uppbyggingu í fiskimannasamfélögum. Á sviði fjölþjóðlegrar samvinnu hefur Ísland lagt ríka áherslu á fiskimál innan Alþjóðbankans og kom m.a. að stofnun styrktarsjóðs um fiskimál árið 2005, PROFISH, sem m.a. hefur að markmiði að auka fjármögnun til verkefna á þessu sviði. Þá hefur Ísland jafnframt kostað stöðu sérfræðings á sviði fiskimála hjá Alþjóðabankanum, fyrst 2009-2010 hjá PROFISH, og síðar í Gana þar sem íslenskur sérfræðingur hóf störf við fiskiverkefni bankans í Vestur Afríku sl. sumar. 

Alþjóðabankinn er nú með allmörg fiskiverkefni í undirbúningi og framkvæmd víða um heim. Oft er þörf fyrir sérhæfða þekkingu í afmarkaðri ráðgjöf í tengslum við framkvæmd þeirra og því hefur sú hugmynd verið rædd við bankann að Ísland gæti aðstoðað við framkvæmd þessara verkefna með því að leggja til tæknilega aðstoð við tiltekna afmarkaða þætti. Reiknað er með að stór hluti verkefna tengist smábátaútgerð og vinnslu í fiskisamfélögum.

Þau svið sem sérstaklega hafa verið nefnd í þessu sambandi eru m.a.:

  • Fiskveiðistjórnun og eftirlit
  • Vinnsla og gæðamál
  • Jafnréttismál í virðiskeðju fiskveiða
  • Stefnumótun og regluverk
  • Öryggismál
  • Fiskeldi og innviðir

Fyrirhugað er að verkefnin verði unnin samkvæmt skilgreindum beiðnum og verklýsingum frá verkefnisteymum Alþjóðabankans eða sem hluta af sameiginlegum verkefnum bankans og Íslands. Ráðuneytið mun halda utan um skrá áhugasamra ráðgjafa og fyrirtækja og fjármagna ráðgjafavinnuna. Umfang og eðli þessa samstarfs mun því markast af eftirspurn verkefnateyma bankans eftir tiltekinni sérfræðiþekkingu. Miðað er við að verkin yrðu unnin samkvæmt ráðgjafatöxtum Alþjóðabankans og bankinn eða viðskiptavinir hans hafi umsjón með framkvæmd ráðgjafavinnunar í hverju verkefni. Markmið fundarins er kynna þessar hugmyndir frekar og kanna áhuga íslenskra aðila á slíku samstarfi og hugmyndum þeirra um framkvæmd þess og mögulega aðkomu.

DAGSKRÁ

9:00     Morgunverður

9:10     Samstarf ráðuneytisins við Alþjóðabankann á sviði fiskimála, Þórarinna Söebech, deildarstjóri fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu, þróunarsamvinnuskrifstofa utanríkisráðuneytisins

9:20     Kynning á fiskiverkefnum Alþjóðabankans og þörf bankans fyrir sérhæfða ráðgjöf

Xavier Vincent, Lead Fisheries Specialist & Global Lead Fisheries and the Blue Economy hjá Alþjóðabankanum

10:00   Mögulegar útfærslur á samstarfi við íslenska aðila, umræður. Davíð Bjarnason, deildarstjóri svæðasamstarfs og atvinnulífs, þróunarsamvinnuskrifstofa utanríkisráðuneytisins

10:15   Umræður og fyrirspurnir

10:30   Fundarlok

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hjá Lilju Jónsdóttur ([email protected]) eigi síðar en föstudaginn 9. febrúar

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum