Hoppa yfir valmynd
18. júní 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 565/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 565/2020

Föstudaginn 18. júní 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. nóvember 2020, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. október 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist stofnuninni.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 3. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 16. nóvember 2020, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð í kjölfar þess að fullnægjandi gögn hefðu borist stofnuninni vegna umsóknar kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. desember 2020, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með símtali starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 12. apríl og 11. júní 2021. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. nóvember 2020, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði afturkallað hina kærðu ákvörðun þar sem fullnægjandi gögn hefðu borist stofnuninni vegna umsóknar kæranda. Umsókn kæranda um greiðslur atvinnuleysisbóta var því samþykkt og bótaréttur ákvarðaður 45%. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum