Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 95/2016 Úrskurður 18. nóvember 2016

Mál nr. 95/2016                     Eiginnafn:      Elizabet

 


 

Hinn 18. nóvember 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 95/2016 en erindið barst nefndinni sama dag:

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

Í eiginnafninu Elizabet (kvk.) reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan þar sem bókstafurinn z er ekki í íslensku stafrófi. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Til stuðnings við mat á hefð samkvæmt 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd byggt á vinnulagsreglum sem nefndin samþykkti á fundi 19. janúar 2015. Þessar vinnulagsreglur eiga sér stoð í ummælum í greinargerð með frumvarpi sem varð að gildandi lögum um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta skipti.

 

Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    2. Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera 6 konur nafnið Elizabet í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð og er sú elsta fædd 1960. Nafnið kemur fyrir í níu manntölum frá 1703–1920. Nafnið Elizabet er því hefðað í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Elizabet (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum