Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn helgaður baráttu gegn sýklalyfjaónæmi

Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í tilefni af alþjóðaheilbrigðisdeginum 7. apríl 2011.
Greinin birtist í Fréttablaðinu 7. apríl.

Þann sjöunda apríl hvert ár heldur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) stofndag sinn hátíðlegan með því að vekja athygli á tilteknu þýðingarmiklu heilbrigðismáli. Með þessu móti er þjóðum heims boðið að taka sameiginlega þátt í að vekja athygli á máli sem eflir heilsu okkar. 

Að þessu sinni hvetur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin til aðgerða gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þótt sýklalyfjaónæmi sé ekki nýtt vandamál er það að verða varasamara en áður. Íslendingar, eins og margar aðrar þjóðir, hafa gripið til aðgerða að undanförnu til að sporna við þessu vandamáli. Slíkar aðgerðir eru nauðsynlegar til þess að við stöndum ekki í sömu sporum og við gerðum fyrir daga sýklalyfja. Allir þurfa að taka þátt í þessu átaki: Stjórnvöld, almenningur, sjúklingar, læknar sem ávísa sýklalyfjum og aðrir heilbrigðisstarfsmenn, svo sem lyfjafræðingar og lyfjaiðnaðurinn. Veigamest af öllu er að reyna að koma í veg fyrir smit og að hefta dreifingu smitsjúkdóma. Því skiptir  þekking almennings á smitvörnum miklu máli og einföld ráð eins og góður handþvottur hafa verulega þýðingu.

Ein skýring á útbreiðslu ónæmisins er mikil notkun sýklalyfja. Þótt notkun sýklalyfja tengist útbreiðslu ónæmis er enn margt á huldu um ástæður útbreiðslunnar. Mikilvægt er að koma þekkingu til skila með réttum skilaboðum og viðbrögðum því sýklalyf gegna mikilvægu hlutverki í meðhöndlun alvarlegra sýkinga. Því er mikilvægt að þau séu notuð á ábyrgan hátt og á réttum forsendum. Enginn dregur í efa gildi þeirra þegar þeirra er þörf. Aðgerðartengdar sýkingar í heilbrigðisþjónustunni eru sérstakt vandamál sem tengist sjúkrahúsum, heilsugæslu og læknastofum. Séu slíkar sýkingar af völdum fjölónæmra sýkla eykur það enn á vandann og ógnar heilsu sjúklinga með auknum kostnaði vegna dýrra sýklalyfja og lengri dvalartíma á sjúkrastofnunum.

Á Íslandi er hvatt til þess að sýklalyf séu notuð með ábyrgum hætti. Lögð er áhersla á sýkingavarnir á heilbrigðisstofnunum og fylgst er með tíðni sýkinga sem tengjast heilbrigðisþjónustunni. Einnig er fylgst með notkun sýklalyfja innan stofnana og utan í því skyni að greina þróunina og hvernig hún tengist myndun sýklalyfjaónæmis. Upplýsingar um notkun sýklalyfja og sýklalyfjaónæmi geta gagnast læknum sem ávísa þessum lyfjum. Á undanförnum árum hefur nokkur árangur náðst við að beina notkun sýklalyfja meðal barna og ungmenna á betri veg.

Unnt er að bólusetja gegn mörgum bakteríu- og veirusýkingum sem leiðir til fækkunar sjúkdómstilvika og minnkandi notkunar sýklalyfja. Þess er vænst að bólusetning ungbarna gegn sýkingum af völdum pneumókokka, svo sem eyrnabólgu, sem hefst í þessum mánuði, dragi úr notkun sýklalyfja og þar með líkum á útbreiðslu fjölónæmra sýkla.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum