Hoppa yfir valmynd
12. október 2020 Matvælaráðuneytið

Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark í sauðfé

Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í fyrstu viku nóvember. Innlausnarverð er núvirt and­virði beingreiðslna næstu tveggja almanaksára, kr. 12.764,- pr. ærgildi.    Það greiðslumark sem er inn­leyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði.

Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að 100% þess greiðslumarks sem er í boði á markaði, þar af 60% til þeirra sem eiga 200 kindur eða fleiri og hafa ásetningshlutfallið 1,6 eða hærra. Það skiptist hlutfalls­lega milli aðila sem hljóta forgang í samræmi við það magn sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Hver framleiðandi getur ekki óskað eftir ærgildum umfram þau sem tryggja honum óskertar bein­greiðslur í samræmi við fjárfjölda og ásetningshlutfall. Það greiðslumark sem ekki er úthlutað til fram­leið­enda í forgangshópi skal boðið öðrum umsækjendum.

Með beiðni um inn­lausn á greiðslumarki skal fylgja veðbókarvottorð ásamt staðfestingu á eignarhaldi að lögbýli og samþykki ábúanda, sam­eigenda og veðhafa í lögbýlinu. Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslumark frá og með 1. janúar 2021. 

Opnað hefur verið fyrir tilboð um kaup og sölu greiðslumarks í Afurð, greiðslukerfi landbúnaðarins, www.afurd.is. Einungis er hægt að skila tilboðum með rafrænum hætti í Afurð.

  • Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember 2020
  • Tilkynnt verður um niðurstöðu markaðarins eigi síðar en 8. nóvember 2020
  • Greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki er til 1. desember 2020

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum