Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2015 Utanríkisráðuneytið

Ábyrg stjórnun olíuvinnslu - sameiginlegur fundur íslenskra og bandarískra stjórnvalda 

Mary Warlick
Mary Warlick

Utanríkisráðuneyti Íslands og Bandaríkjanna í samvinnu við iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, sendiráð Bandaríkjanna og Orkustofnun, efna til tveggja daga málsstofu í Reykjavík  um ábyrga stjórnun olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, setti málstofuna í morgun.


Á málsstofunni munu bandarískir og íslenskir sérfræðingar ræða málefni sem varða setningu reglna um starfsemi olíu- og gasvinnslu og jafnframt um langtíma stjórnun slíkrar vinnslu.  Bandaríkjamenn, sem nýverið tóku við formennsku í Norðurskautsráðinu, hafa sýnt olíuvinnslu á norðurslóðum mikinn áhuga. Nýverið settu þeir af stað verkefni sem hefur það að markmiði að auka umræðuna um olíuvinnslu á norðurslóðum en það er unnið sérstaklega með íslenskum og grænlenskum stjórnvöldum. 

Auk málstofunnar nú verður haldin málstofa í Nuuk á Grænlandi síðar á árinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum