Hoppa yfir valmynd
5. maí 2015 Innviðaráðuneytið

59 sveitarfélög af 74 hafa sett sér siðareglur

Í sveitarstjórnarlögum frá 2011 er kveðið á um skyldu sveitarstjórna að setja sér siðareglur. Ákvæðið er nýmæli og sett í kjölfar umræðu um siðareglur  kjörinna fulltrúa og mikilvægi þeirra. Innanríkisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir siðareglur staðfestar af ráðuneytinu sbr. 29. gr. sveitarfélagalaga nr. 135/2011. Þar kemur fram að 59 af 74 sveitarfélögum hafa sett sér siðareglur og sent ráðuneytinu til staðfestingar og vitað er um nokkur í viðbót hvar undirbúningur að gerð siðareglna er á lokastigi.

Siðareglur sem sveitarstjórn setur gilda fyrir fulltrúa í sveitarstjórn sem og nefndir og ráð sveitarstjórnar. Siðareglurnar þurfa staðfestingu innanríkisráðuneytisins og skulu þær birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélaga eða á annan sambærilegan hátt og eru þannig aðgengilegar öllum.

Siðareglur halda gildi sínu þar til annað er ákveðið af viðkomandi sveitarstjórn eða þeim sem síðar eru kjörnar. Á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga starfar siðanefnd og hefur hún gefið út leiðbeiningar til nýrra sveitarstjórna um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum