Hoppa yfir valmynd
31. maí 2018 Utanríkisráðuneytið

Sýrlendingar bjóða til matar til styrktar börnum í Jemen

Talal Abo Khalil, ásamt Kinan Kadouni og fleiri vinum, munu standa fyrir skemmtilegum viðburði í Ráðhúsi Reykjavíkur, laugardaginn 2. júní. Þar munu þeir bjóða upp á sýrlenskt góðgæti og taka í staðinn á móti framlögum í neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn í Jemen. Talal og Kinan þekkja vel lífið í skugga átaka, en báðir þurftu þeir að flýja heimkynni sín í Sýrlandi. Í krafti bræðralags með þeim sem minna mega sín taka þeir nú höndum saman til að bæta líf barna sem eiga um sárt að binda í Jemen. Allur ágóði rennur til neyðarsöfnunnar UNICEF fyrir börn í Jemen.

Viðburðurinn er hluti af söfnunarátakinu Má ég segja þér soldið? sem UNICEF á Íslandi stendur fyrir. Eftir margra ára átök ríkir gífurleg neyð í Jemen, einu fátækasta ríki heims, neyð sem hefur farið framhjá mörgum. Nú er svo komið að Jemen er einn versti staður í heimi til að vera barn og nánast hvert einasta barn í landinu þarfnast neyðaraðstoðar. Mörg þúsund börn hafa látið lífið eða verið limlest í borgarastríðinu og lífum og framtíð margfalt fleiri barna er ógnað. Innviðir landsins hafa verið eyðilagðir, aðgangur að hreinu vatni og næringu er takmarkaður, heilbrigðiskerfið er að hruni komið og fjöldi opinberra starfsmanna hefur ekki fengið greidd laun í rúmt ár. Í ofanálag braust út skæður kólerufaraldur í landinu á síðasta ári en fleiri en milljón tilfelli hafa verið greind.

UNICEF er á vettvangi og verður það áfram. Við hlúum að börnum og fjölskyldum þeirra og veitum nauðsynlega neyðaraðstoð. Hægt er að styðja söfnunina með því að senda SMS-ið JEMEN í númerið 1900 eða leggja inn frjálst framlag á www.unicef.is/neyd. Fyrir 1900 krónur er t.d hægt að veita barni rúmlega tveggja vikna meðferð við vannæringu. Fyrir frekari upplýsingar um söfnun má finna hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum