Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2019 Utanríkisráðuneytið

„Ekki koma með ræðu, komið með áætlun“

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Efnt verður til leiðtogafundar um loftslagsmál á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í haust, nánar tiltekið 23. september. António Guterres aðalframkvæmdastjóri SÞ hvetur þjóðarleiðtoga ekki aðeins til þess að sækja fundinn heldur til að kynna raunhæfar aðgerðir. „Ekki koma með ræðu, komið með áætlun,“ segir hann. „Vísindin segja okkur að þetta sé nauðsynlegt. Og þetta er það sem ungt fólk um allan heim er réttilega að krefjast.“

Guterres skrifar ávarp í nýútkomna skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnuninnar þar sem hann ítrekar áskoranir um aðgerðir. Í skýrslunni – Statement of the State of The Global Climate in 2018 – er sýnt fram á að aukin samþjöppun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu aukist hratt og það er mat stofnunarinnar að þessi þróun nálgist hættumörk. Í skýrslunni segir að áþreifanleg merki um loftslagsbreytingar komi sífellt betur í ljós og jafnframt félagsleg og efnahagsleg áhrif þeirra. Þá er vakin athygli á hækkandi yfirborði sjávar og óvenjuháum loft- og sjávarhita síðustu fjögur árin. Hlýnunin hafi verið samfelld frá síðustu aldamótum og reiknað sé með að hún haldi áfram.

Í frétt frá Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (UNRIC) segir að fjölgun náttúruhamfara og hættuástands sem tengist loftslagsbreytingum sé að mati António Guterres enn ein viðvörunin til heimsins um að finna verði með hraði sjálfbærar lausnir. „Skýrslan sannar það sem við höfum sagt: hraðinn í loftslagsbreytingar en meiri en viðleitni okkar til að takast á við breytingarnar. "

Frétt UN News: New UN Global Climate report ‘another strong wake-up call’ over global warming: Guterres

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum