Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2022 Matvælaráðuneytið

Matvælaráðherra leggur grunn að metnaðarfullri stefnumótun í lagareldi

Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra er hafin vinna við gerð skýrslu á stöðu lagareldis á Íslandi. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

Að undangengnu útboði hefur matvælaráðuneytið samið við bandaríska ráðgjafafyrirtækið Boston Consulting Group Nordic AB um gerð skýrslunnar þar sem gerð verður ítarleg úttekt á stöðu lagareldis á Íslandi. Í skýrslunni verða greindir framtíðarmöguleikar og áskoranir greinarinnar og mun sú vinna nýtast við stefnumótun matvælaráðherra. Tekið verður mið af umhverfismálum, verðmætasköpun og regluverki. Til samræmis við stjórnarsáttmála verður áhersla lögð á að kortleggja tækifæri til sjálfbærs vaxtar greinarinnar með vísindalega þekkingu að leiðarljósi. Höfð verður hliðsjón af samanburðargreiningu við þau lönd sem helst stunda lagareldi. Einnig verður gerð úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa af hinni ýmsu starfsemi s.s. sjókvíaeldis.

Mikill vöxtur hefur verið í leyfisveitingum til sjókvíaeldis og framleiðslu á laxi undanfarinn áratug á Íslandi. Einnig liggja fyrir áætlanir um framleiðslu á laxi á landi af stærðargráðu sem eiga sér ekki fordæmi hérlendis. Áhugi á þörungarrækt hefur jafnframt aukist verulega.

„Það er augljóst að lagareldi er framtíðaratvinnugrein á heimsvísu,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Það eru í senn okkar forréttindi og ábyrgð að koma málum í þann farveg að greinin eigi sér bjarta framtíð á Íslandi, með hagsmuni samfélags og náttúru að leiðarljósi“.

Gert er ráð fyrir að skýrslan verði tilbúin í nóvember á þessu ári.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum