Hoppa yfir valmynd
10. júní 2020 Utanríkisráðuneytið

Kamerún vanræktasta neyðarsvæðið í veröldinni

Forsíðumynd skýrslu NRC. - mynd

Níu af tíu vanræktustu neyðarsvæðum veraldar eru í Afríku, samkvæmt árlegum lista norska flóttamannaráðsins (NRC) sem birtur var í dag. Átakasvæðin sem fá minnstan stuðning og minnstu athyglina eru í Kamerún, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Burkina Faso. Að mati NRC er óttast að ástandið versni á árinu vegna kórónaveirufaraldursins.

Jan Egeland framkvæmdastjóri norska flóttamannaráðsins segir að fyrrnefnd átakasvæði í Afríku þar sem milljónir íbúa neyðist til að hrekjast burt af heimilum sínum, séu enn og aftur þau neyðarsvæði í heiminum sem fá minnst fjármagn og minnstu athygli fjölmiðla. „Þrátt fyrir óskaplega neyð og alþjóðleg neyðarköll er enginn að hlusta,“ segir Jan Egland.

Listinn yfir vanræktustu neyðarsvæðin byggir á greiningu á 40 heimshlutum þar sem fólk neyðist til að flýja vegna átaka. Þrjú viðmið eru lögð til grundvallar: skortur á fjármagni, skortur á athygli fjölmiðla, og pólitískt og diplómatískt áhugaleysi.

Venesúela er eina landið utan Afríku á listanum en tíu efstu löndin eru þessi: Kamerún, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Búrkína Fasó, Búrúndi, Venesúela, Malí, Suður-Súdan, Nígería, Miðafríkulýðveldið og Níger.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum