Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2018 Utanríkisráðuneytið

Fátækar fjölskyldur í Eþíópíu og Perú fá aðstoð frá Íslandi

Taye með Emebel móður sinni og litla bróður. Ljósmyndir: SOS Barnaþorpin. - mynd

Í nýju fréttabréfi SOS Barnaþorpanna á Íslandi kemur fram að fjölskylduefling er það verkefni samtakanna sem vex hraðast í dag. Verkefnið gengur út á að fátækar barnafjölskyldur á svæði nálægt SOS barnaþorpi fá aðstoð frá samtökunum til sjálfshjálpar, það er að sjá fyrir börnum sínum og mæta grunnþörfum þeirra.

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármögnuðu fjögurra ára fjölskyldueflingarverkefni í Bissá, höfuðborg Gíneu-Bissá, sem lauk í fyrra með góðum árangri og í kjölfarið hófst tímabundið verkefni í Venesúela og Eþíópíu sem nýttist um 900 fjölskyldum.

SOS á Íslandi fjármagnar nú tvö fjölskyldueflingarverkefni, eitt í Perú og annað í Eþíópíu sem hófst 18. janúar síðastliðinn. Það er á Tulu Moye svæðinu sem er í 175 km fjarlægð frá höfuðborginni Addis Ababa. 556 fjölskyldur á svæðinu sem lifa í sárafátækt hafa verið teknar inn í verkefnið en í þeim eru 1633 börn undir 18 ára aldri. Aðstæður barna eru bágbornar og fólkið þarf svo sannarlega á aðstoð okkar að halda.

Niðurbrotinn yfir því að komast ekki í skóla

Taye er 17 ára strákur sem hefur áhyggjur af framtíð sinni því foreldrar hans hafa ekki lengur efni á menntun fyrir hann. Taye lauk námi í tíunda bekk fyrir nokkrum mánuðum og ætti að vera að undirbúa sig fyrir menntaskóla en hann á fimm yngri systkini sem foreldrarnir þurfa líka að fæða og klæða. Auk þess sem þau hafa ekki lengur efni á menntun fyrir Taye þarf hann nú að leggja sín lóð á vogarskálarnar við að afla tekna fyrir heimilið. „Ég veit að foreldrar mínir eru að reyna sitt besta en lífið er erfitt án peninga. Ég er niðurbrotinn yfir því að komast ekki í menntaskóla,“ sagði Taye í samtali við starfsmann SOS Barnaþorpanna sem sá augu hans fyllast af tárum.

Taye á sér þann draum að verða læknir og hann vonar að SOS Barnaþorpin styrki sig til námsins. „Ég vil verða læknir því það er skortur á þeim hér í Eþíópíu. Svo margar konur deyja af barnsförum og ég vil hjálpa til við að draga úr þeirri dánartíðni.“

Sérþjálfað starfsfólk

SOS Barnaþorpin hafa þjálfað starfsfólk í að hjálpa fjölskyldum sem þessari í Tulu Moye og felst verkefnið m.a. í styðja fjölskyldur til sjálfbærni. Áhersla er lögð á börnin fái menntun og fjölskyldur fá faglega aðstoð við að auka tekjumöguleika sína, meðal annars með námskeiðum í rekstrarháttum og fjármálalæsi. Þá er þeim gert kleift að taka lán á lágum vöxtum til að eiga fyrir grunnþörfum barnanna. Reikna má með að fjölskylda Taye muni með aðstoð fjölskyldueflingar SOS komast á réttan kjöl innan þriggja ára.

Móðir Taye heitir Emebet og er 32 ára. Hún hefur haft tekjur af því að baka flatbrauð og faðir hans vinnur við meðhöndlun á mold til húsabygginga en tekjurnar duga skammt. „Mín von er að SOS teymið muni hjálpa mér við að koma upp smárekstri. Ég stefni á að leggja fyrsta sparnaðinn í reksturinn til að leggja grunn að hagnaði. Eftir það ætla ég að koma börnunum til mennta og kaupa næringarríkan mat en ég hef ekki haft efni á því.“ segir Emebet.

Í fjötrum fátæktar vegna skorts á menntun

Tadese Abebe, framkvæmdastjóri verkefnis fjölskyldueflingar SOS í Tulu Moey, segir að stærsta ástæðan fyrir fátækt fjölskyldna á svæðinu sé skortur á menntun. „Flestar fjölskyldurnar eru í þessari stöðu vegna þess að foreldrarnir eru ólæsir, óskrifandi og lítið menntaðir.“

Þú getur hjálpað

Fjölskyldueflingunni er haldið uppi af Fjölskylduvinum SOS Barnaþorpanna, Til að gerast SOS-fjölskylduvinur getur þú annað hvort hringt á skrifstofu samtakanna í Kópavogi í síma 564 2910 eða einfaldlega farið inn á heimasíðuna sos.is og valið þar að greiða frá 1.000 krónum á mánuði upp í hærri fjárhæðir.

Fréttabréf SOS Barnaþorpanna á Íslandi, 2. tbl. 24. árg. 2018

  • Taye þvær þvott með móður sinni. - mynd
  • Taye ásamt föður sínum að útbúa mold til húsbygginga. - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum