Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2018 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir UNICEF um fimm milljónir kr. vegna útgáfu skýrslu um efnislega stöðu barna á Íslandi

  - myndHaraldur Jónasson / Hari
Ríkisstjórnin mun veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að styrkja útgáfu skýrslu um stöðu efnislegs skorts barna á Íslandi, sem UNICEF á Íslandi mun vinna í samstarfi við Hagstofu Íslands. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. 
UNICEF gaf út sambærilega skýrslu árið 2016 með útgáfustyrk frá velferðarráðuneytinu. Í ljósi jákvæðrar reynslu af notagildi greiningar af þessu tagi og markmiðs um að efnisleg staða barna verði í framtíðinni hluti af reglubundnum mælingum Hagstofu Íslands, samþykkti ríkisstjórnin að veita 5 milljónum króna til verkefnisins. 
 
„Þetta er að mínu mati afar mikilvægt verkefni og ekki síður er mikilvægt að tryggja að sambærilegar mælingar verði gerðar reglulega í framtíðinni. Staða barna og velferð segir mikið um stöðu samfélaga almennt. Við eigum að leggja áherslu á að hlúa að börnum og ungmennum á öllum sviðum og að því vil ég vinna“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. 
 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 1 Engin fátækt

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum