Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2007 Utanríkisráðuneytið

Útgáfa launamiða fyrrverandi starfsmanna varnarliðs Bandaríkjanna

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 17/2007

Vegna fréttaflutnings varðandi vandkvæði tengd útsendingu launamiða vegna skattframtala fyrrverandi starfsmanna varnarliðsins, vill utanríkisráðuneytið taka fram að sendiráð Bandaríkjanna í samvinnu við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins vinnur að því að koma nauðsynlegum gögnum til skattyfirvalda. Komi þessar upplýsingar ekki tímanlega til áritunar á skattframtöl munu skattyfirvöld fylgjast með því að hlutaðeigandi telji téðar greiðslur réttilega fram.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum