Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mælti fyrir frumvarpi um sorgarleyfi á Alþingi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, mælti fyrir frumvarpi um sorgarleyfi á Alþingi í dag. Með frumvarpinu verður foreldrum á vinnumarkaði tryggt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap á tilteknu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis.

Meginefni frumvarpsins er að tryggja foreldrum á vinnumarkaði, sem verða fyrir barnsmissi, rétt til sorgarleyfis í sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili. Hámarksgreiðslur í sorgarleyfi vegna barnsmissis verða samkvæmt frumvarpinu 600.000 kr. á mánuði. Einnig er gert ráð fyrir að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgarleyfis samhliða minnkuðu starfshlutfalli og einnig yfir lengra tímabil enda sýna niðurstöður rannsókna fram á mikilvægi þess að einstaklingar sem verða fyrir áföllum í lífinu haldi sambandi við vinnumarkaðinn eins og þeir treysta sér til hverju sinni.

Í frumvarpinu eru áhrif sorgarinnar vegna barnsmissis á fjölskylduna í heild viðurkennd óháð fjölskyldugerð og er efni frumvarpsins ætlað að koma til móts við fjölbreytt fjölskyldumynstur í íslensku samfélagi, ásamt því að auka líkur á að foreldrar eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað og taki frekar virkan þátt í samfélaginu í kjölfar barnsmissis.

„Við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að huga sérstaklega vel að stuðningi við börn og barnafjölskyldur í kjölfar þess að barn innan fjölskyldu andast,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í framsöguræðu sinni. „Með því að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis samhliða greiðslum í sorgarleyfi leyfi ég mér að fullyrða að í það minnsta í sumum tilvikum megi koma í veg fyrir mögulegan og/eða varanlegan heilsubrest sem geti meðal annars dregið úr virkni á vinnumarkaði til lengri tíma litið. Á sama tíma og ég tel skipta mestu máli að fólk fái svigrúm til sorgarúrvinnslu þá hef ég líka trú á því að með því að tryggja foreldrum á innlendum vinnumarkaði svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis megi auka líkur á að viðkomandi eigi farsæla endurkomu á vinnumarkað og taki virkan þátt í samfélaginu að nýju eftir slíkan missi svo ekki sé talað um þann ávinning sem hlýst af því að veita foreldrum svigrúm til að styðja við eftirlifandi systkin,“ sagði ráðherra enn fremur.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum