Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 577/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 30. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 577/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19110001 og KNU19110002

 

Kæra […] ,

[…]

og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. nóvember 2019 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir K) og […] , fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. október 2019 um að synja kærendum og barni þeirra, […], fd. […], ríkisborgari Albaníu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að brottvísanir og endurkomubönn, sbr. 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. og 101 gr. laga um útlendinga í hinum kærðu ákvörðunum Útlendingastofnunar, verði felldar úr gildi.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 3. október 2019. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 10. október 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. sama dag, synjaði Útlendingastofnun kærendum og barni þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum var jafnframt brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Að ósk kærenda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðunum Útlendingastofnunar með bréfi stofnunarinnar, dags. 28. október 2019. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 1. nóvember 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgigögnum þann 7. nóvember 2019.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að fjölskyldan hafi upplifað ofbeldi, hótanir og áreiti frá ótilgreindum aðilum í heimaríki.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn barns kærenda væri grundvölluð á framburði foreldra þess og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að barni kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Barni kærenda var vísað frá landinu.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kærendum ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að kærendur óttist ótilgreinda aðila sem hafi áreitt þau og hótað þeim. M hafi verið í heimsókn hjá ættingja í öðrum bæ og orðið vitni að ætluðum kannabisviðskiptum. Þessa aðila hafi grunað M um að hafa tilkynnt þá til lögreglu. Þeir hafi hringt í hann og hótað honum í kjölfarið. M hafi tilkynnt málið til lögreglu en hún hafi ekki aðhafst í málinu. Kærendur hafi dvalið tímabundið utan heimabæjar síns og M hafi orðið var við bíl sem veitti honum eftirför. Þá hafi fjórir eða fimm karlmenn beitt hann ofbeldi, með þeim afleiðingum að hann vaknaði á sjúkrahúsi með áverka. Þá hafi K greint frá því að tveir aðilar hafi komið á heimili fjölskyldunnar og spurt um M. Þegar hún hafi greint þeim frá því að hann væri ekki heima, hafi annar aðilinn talað við hana og snert hana á óviðeigandi hátt. Hún hafi fallið í yfirlið og vaknað á sjúkrahúsi. Kærendur séu mjög óörugg um framtíð sína, barns þeirra og ófædds barns vegna þessara aðila og að þau treysti ekki lögreglunni til að aðstoða þau eða vernda.

Kærendur fjalla í greinargerð sinni um ástand mannréttindamála í Albaníu, m.a. um spillingu stjórnvalda og aðgerðarleysi lögreglu. Vísa kærendur til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. 

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks leyfis þegar útlendingur sé staddur hér á landi og geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. vegna heilsufarsvanda, erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi. Með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti er vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og sérstaklega tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þá beri að líta til þess að í umfjöllun um ákvæði 74. gr. sé lagt til að við töku ákvörðunar um þörf fyrir vernd skuli sérstaklega taka tillit til barna og þannig komi til greina að gera minni kröfur til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laganna.

Með vísan til frásagnar í viðtölum hjá Útlendingastofnun og með tilliti til framangreindra heimilda telji kærendur ljóst að aðstæður fjölskyldunnar geri það að verkum að þau eigi rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi megi benda á að aðstæður þeirra séu með þeim hætti að yfirvöld veiti þeim ekki vernd gegn ofbeldisbrotum.

Þá beri að líta til hagsmuna barns kærenda og vísa kærendur til 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og annarra lagaákvæða um að ávallt skuli hafa það sem barni er fyrir bestu að leiðarljósi. Það sé barni kærenda ekki fyrir bestu að dvelja í Albaníu, í þeirri óvissu sem þar ríki. Þá sé K þunguð og gengin rúmlega 36 vikur á leið með annað barn þeirra hjóna. Það sé ljóst að móður og ófæddu barni hennar sé ekki fyrir bestu að hafa verið send til heimalands síns með þeim hætti sem gert hafi verið, á lokametrum meðgöngu með tilheyrandi álagi og streitu auk óvissu um hvort hótanirnar haldi áfram að berast og hvort aðilarnir muni aðhafast frekar.

Í greinargerðinni er vakin athygli á því að í nánari rökstuðningi fyrir ákvörðun í máli K sé það mat stofnunarinnar að hún sé ekki í viðkvæmri stöðu, sem geti haft áhrif á niðurstöðu í máli hennar. Ljóst sé að mat stofnunarinnar sé ekki forsvaranlegt, enda séu þungaðar konur taldar sérstaklega upp í dæmaskyni í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga er varðar einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls. Ljóst sé að slíkt hafi ekki verið gert í málsmeðferð hennar og við ákvarðanatöku hjá Útlendingastofnun.

Þá er gerð athugasemd við þá röksemdafærslu sem Útlendingastofnun setur fram í ákvörðun við barn kærenda. Tekið sé fram að úrlausn um rétt barns til alþjóðlegrar verndar sé grundvölluð á framburði forelda hans og þar sem þeim sé synjað um slíka vernd skuli honum jafnframt synjað um vernd. Þá komi fram að með vísan til niðurstöðu í máli foreldra hans, og að gættum ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, barnaverndarlaga og laga um útlendinga sé það niðurstaða Útlendingastofnunar að hagsmunum hans sé ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Albaníu. Ákvörðun í máli hans sé ekki rökstudd frekar. Slík framkvæmd stangist á við Barnasáttmálann, barnalög sem og lög um útlendinga, þar sem skýrt sé tekið fram að hagsmunir barna skuli hafa forgang og sérstakt tillit tekið til barna við ákvörðun.

Til vara krefjast kærendur þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar hvað varðar brottvísanir og endurkomubönn verði felldar úr gildi. Umsóknir þeirra séu ekki bersýnilega tilhæfulausar enda séu þau að flýja ofbeldi og hótanir í Albaníu. Með þeim sé […] barn þeirra og K sé komin […] með annað barn þeirra. Ennfremur hafi Útlendingastofnun verið óheimilt að ákvarða þeim brottvísun á grundvelli 3. mgr. 101 gr. laga um útlendinga og hafi ákvarðanirnar verið í andstöðu við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað albönskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og barn þeirra séu albanskir ríkisborgarar.

Réttarstaða barns kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Albaníu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Albanien - Mänskliga rättigheter, demokrati och rättsstatens principer: situationen per den 30 juni 2018 (Utrikesdepartimentet, 20. febrúar 2019);
  • Albania - 2017-18 Demographic and Health Survey Albania 2017/2018 https://dhsprogram.com/pubs/pdf/FR348/FR348.pdf (Institute of Public Health, október 2018);
  • Country Reports on Human Rights Practices for 2018 – Albania (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Country Information and Guidance – Albania: Background information, including actors of protection, and internal relocation (UK Home Office, 21. ágúst 2015);
  • EASO Country of Origin Information Report: Albania. Country Focus (European Asylum Support Office, nóvember 2016);
  • Freedom in the World 2018 – Albania (Freedom House, 28. maí 2018);
  • Lifosrapport: Albanien – rätts – och säkerhetssektorn (Migrationsverket, 29. mars 2019);
  • Report to the Albanian Government on the visit to Albania carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman and Degrading Treatment or Punishment (CPT) (Council of Europe, 24. maí 2018);
  • Social Protection Albania (International Labour Organization, sótt 6. nóvember 2019);
  • The World Factbook. Europe: Albania (Central Intelligence Agency, 19. júní 2018) og
  • Unicef Albania Country Office Annual Report (UNICEF, febrúar 2019).

Albanía er lýðræðisríki með um þrjár miljónir íbúa. Ríkið gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Albanía gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 18. ágúst 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 4. október 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 11. maí 1994. Albanía sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 og fékk stöðu sem umsóknarríki í júní 2014. Albanía er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki. Í ljósi þess má ætla að grundvallarmannréttindi séu almennt talin virt af yfirvöldum í landinu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að yfirvöld í Albaníu hafi undanfarin ár unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu. Jafnframt kemur fram að albönsk stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og að Albaníu hafi miðað áfram í málefnum er snerti réttarkerfið og frelsi og öryggi borgara landsins. Þá hafi laun lögreglumanna verið hækkuð og mikil endurnýjun hafi átt sér stað í lögregluliði landsins auk þess sem yfirvöld sæki lögreglumenn til saka vegna brota í starfi. Þá hafi stjórnvöld gripið til tæknilegra aðgerða til þess að stemma stigu við afbrotum í starfi á borð við að láta lögreglumenn bera myndavélar og gera greiðslur umferðarsekta rafrænar. Fram kemur að sett hafi verið á fót þjónusta sem heyri undir albanska innanríkisráðuneytið sem geri borgurunum kleift að senda inn kvartanir vegna spillingarmála í eigin persónu eða símleiðis. Einnig sé starfrækt vefgátt á vegum yfirvalda þar sem borgarar geti tilkynnt misferli opinberra starfsmanna. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi kvörtunarþjónustu innanríkisráðuneytisins borist fjöldi kvartana varðandi spillingu innan lögreglu sem hafi leitt til þess að lögreglumenn hafi sætt agaviðurlögum og í sumum tilvikum hlotið refsingu. Árið 2018 hafi albanski umboðsmaðurinn (a. avokati i popullit) einnig tekið til meðferðar kvartanir vegna brota lögreglumanna í starfi og þá aðallega vegna vandamála tengdum handtökum og varðhaldi.

Samkvæmt albönskum heilbrigðislögum eigi íbúar landsins rétt á almennri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt lögunum skuli heilbrigðisyfirvöld m.a. kynna og tryggja jafnan rétt allra til heilbrigðisþjónustu. Af framangreindum gögnum sé ljóst að mæðra- og ungbarnavernd sé góð í Albaníu og verðandi mæður í Albaníu hafi að jafnaði aðgang að þjónustu á meðgöngu sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnun mæli fyrir um og fullnægjandi eftirlit heilbrigðisstarfsfólks s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur byggja ástæðu flótta síns frá heimaríki á því að þau hafi sætt ofbeldi, hótunum og áreiti af hálfu ótilgreindra aðila. Þau hafi leitað til lögreglu en án árangurs.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu albanskra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur eigi þær á hættu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er það mat kærunefndar að þeir ríkisborgarar Albaníu sem telja að á réttindum sínum sé brotið geti leitað aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn sinna mála. Þá sé til staðar kerfi í Albaníu sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og embættis umboðsmanns í ríkinu. Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursríki. Að mati kærunefndar hefur ekki verið sýnt fram á að aðstæður kærenda séu með þeim hætti að stjórnvöld í heimaríki þeirra skorti vilja eða getu til að veita kærendum viðeigandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í ljósi ungs aldurs A taldi Útlendingastofnun ekki þörf á að taka viðtal við það. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barns kærenda nægilega komið á framfæri með viðtölum, framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Leggur kærunefnd því mat á hagsmuni þess samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og aðstæðum í heimaríki þeirra. Við það mat horfir kærunefnd m.a. til þess að barn það sem um ræðir er í fylgd með foreldrum sínum og nýtur stuðnings þeirra. Kærendur kváðust vera vel stödd fjárhagslega eiga fasteignir og reka eigið fyrirtæki og ættu því að geta tryggt framfærslu barns síns. Ennfremur sé ljóst af gögnum um heimaríki kærenda að þurfi kærendur að fá aðstoð til að framfæra sér og barni sínu, sé til staðar velferðarkerfi í heimaríki þeirra sem geti veitt þeim stuðning. Samkvæmt gögnum málsins mun barn kærenda hafa aðgang að mennta- og heilbrigðiskerfi í heimaríki. Í málinu liggur ekki fyrir að barn kærenda hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til, aðrar en þær sem leiða af aldri þess. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barns kærenda, að það sé því fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau og barn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og barn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður kærenda og barns þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og barn þeirra uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og barn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærendur hafa greint frá því að þau óttist ofbeldi af hendi ótilgreindra aðila í heimaríki. Kærendur bera fyrir sig að umræddir aðilar hafi ráðist á M og veitt honum áverka. Þá hafi K greint frá áreiti af hálfu aðilanna á heimili kærenda. Kærendur lögðu fram læknisvottorð og lögregluskýrslu dags. 10. september 2019 máli sínu til stuðnings. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að borgurum standi almennt til boða skilvirk vernd yfirvalda. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að tilefni sé til að veita þeim og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í viðtölum við kærendur hefur ekkert annað komið fram en að þau og barn þeirra séu við ágæta heilsu. Í göngudeildarnótu, dags. 22. október sl. kemur fram að M sé almennt heilsuhraustur. M hefur þó greint frá því að hann glími við kvíða eftir átök við menn í heimaríki. Í gögnum málsins kemur einnig fram að K sé barnshafandi komin um það bil […] vikur þegar greinargerð var skilað og sé almennt heilsuhraust. Eins og fram hefur komið benda gögn um heimaríki kærenda til þess að kærendum og barni þeirra standi til boða heilbrigðisþjónusta, þ.m.t. mæðravernd, ungbarnaeftirlit og fæðingarþjónusta í heimaríki.

Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau og barn þeirra hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda og barns þeirra í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinagerð kærenda er gerð athugasemd við það að í ákvörðun Útlendingastofnunar skuli K ekki vera metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Telji kærendur slíkt ekki forsvaranlegt þar sem þungaðar konur séu sérstaklega taldar upp í dæmaskyni í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga er varðar einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sem hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls. Þá er gerð athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um hagsmuni barns kærenda. Hvergi sé tekið fram hvernig mat á högum þess hafi farið fram, hvaða ákvæði Barnasáttmálans og annarra lagaákvæða hafi verið lögð til grundvallar við matið, og hvernig stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að öruggt sé að senda það aftur til Albaníu.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvalda afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Í gögnum málsins kom fram að K væri barnshafandi og langt gengin með annað barn kærenda. Í ákvörðun stofnunarinnar er ekki fjallað um aðstæður hennar eða aðgang K að mæðra- eða ungbarnavernd í heimaríki eða almennrar heilbrigðisþjónustu. Af ákvörðun Útlendingastofnunar verður að öðru leyti ekki ráðið að þessi þáttur hafi verið rannsakaður sérstaklega. Af mati kærunefndar er málsmeðferð Útlendingastofnunar því að þessu leyti haldin annmarka.

Við meðferð málsins hefur kærunefnd rannsakað upplýsingar um heilbrigðisþjónustu í heimaríki kæranda einkum hvaða varðar þjónustu sem er í boði fyrir verðandi mæður og ungbörn þeirra í Albaníu. Að mati kærunefndar stendur kærendum til boða heilbrigðiseftirlit og - þjónusta í heimaríki vegna þungunar K, svo sem fram hefur komið. Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Verður því ekki talið að skortur á umfjöllun um heilbrigðisaðstæður og aðgang að mæðra- og ungbarnavernd í heimaríki leiði til ógildingar á ákvörðun Útlendingastofnunar, enda hefur kærunefnd bætt úr annmarkanum á kærustigi, og ljóst er að skortur á rannsókn hafði ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að röksemdarfærslu Útlendingastofnunar varðandi mat á hagsmunum barnsins sé áfátt og ekki í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þegar um er að ræða börn sem eru í fylgd með foreldrum sínum hefur Útlendingastofnun afgreitt mál hvers einstaklings í sérstakri ákvörðun en í rökstuðningi í máli barna er um ákveðin atriði vísað til rökstuðnings með ákvörðunum foreldra. Þegar þessi leið er farin verða ákvarðanir fjölskyldunnar í heild sinni þó ávallt að uppfylla reglur stjórnsýslulaga um rökstuðning og vera að öðru leyti settar fram á þann hátt að af lestri þeirra megi ráða að í reynd hafi farið fram skyldubundið mat á hagsmunum barnanna á viðhlítandi grundvelli. Af ákvörðun Útlendingastofnunar verður ekki ráðið að þessi þáttur hafi verið skoðaður sérstaklega og er ákvörðunin því að þessu leyti haldin annmarka.

Í umfjöllun kærunefndar hafa þessir þættir verið skoðaðir sérstaklega og hefur nefndin komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun að því leyti að nefndin telur það samrýmast best hagsmunum barns kærenda að það fari með foreldrum sínum til heimaríkis. Kærunefnd telur jafnframt ljóst að sá annmarki sem er á ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi barn kærenda hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu málsins. Þá hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda af skjótri málsmeðferð. Af þessum sökum telur kærunefnd að ekki sé ástæða til, eins og stendur sérstaklega á í þessu máli, að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi vegna ófullkominnar umfjöllunar stofnunarinnar um barn kærenda og hagsmuni þess. Kærunefnd gerir þó athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um hagsmuni barnsins og þau viðmið sem stofnunin virðist styðjast við og ítrekar fyrri tilmæli um að Útlendingastofnun vandi betur umfjöllun sína um umsóknir barna.

Frávísun, brottvísun og endurkomubann

Með vísan til atvika málsins tekur kærunefnd undir forsendur Útlendingastofnunar varðandi frávísun kærenda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. til hliðsjónar 2. málsl. 3. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum brottvísað og ákvarðað endurkomubann, sbr. 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ástæða þess er að Útlendingastofnun mat umsóknir kærenda bersýnilega tilhæfulausa í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga en ákvæðið veitir stjórnvöldum heimild til að fella niður frest sem að jafnaði er veittur útlendingi til að yfirgefa landið sjálfviljugur í kjölfar ákvörðunar um að yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar umsókn útlendings um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn.

Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til þess að orðið tilhæfulaus lýsir einhverju sem byggir ekki á staðreyndum eða á ekki við rök að styðjast. Þá leiðir af orðalagi ákvæðisins að tilhæfuleysi umsóknar þarf að vera bersýnilegt, þ.e. blasa við stjórnvaldi við skoðun málsins. Með vísan til orðalags ákvæðisins og til samræmis við ákvæði tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl telur kærunefnd að umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við þegar:

a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,

b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og

c) frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.

Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau hafi þurft að þola ofbeldi, hótanir og áreitni af hálfu ótilgreindra aðila í heimaríki og að þau telji sig ekki geta fengið aðstoð lögreglu. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kærendum til boða að leita til lögreglu þurfi þau á aðstoð að halda. Þá sé til staðar kerfi í Albaníu sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Það er mat kærunefndar, að teknu tilliti til gagna um heimaríki kærenda og aðstæður þeirra þar, að það hafi frá upphafi málsmeðferðarinnar verið bersýnilegt að málsástæður kærenda vörðuðu ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til. Enn fremur hafi verið bersýnilegt að aðrar aðstæður í heimaríki kærenda séu ekki þess eðlis eða nái því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í þessu sambandi lítur kærunefnd til þess að orðalag 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um að aðili þurfi að sýna fram á ríka þörf á vernd og tekur mat stjórnvalda á tilhæfuleysi slíkra umsókna mið af þeirri ábyrgð sem lögð er á aðila að þessu leyti. Þá er einnig ljóst að frekara mat og gagnaöflun hafi ekki breytt ofangreindu mati.

Að mati kærunefndar eru líkur á því að ákvörðun um niðurfellingu frests hafi varnaðaráhrif sem þjóni því markmiði að stuðla að fækkun bersýnilega tilhæfulausra umsókna frá öruggum upprunaríkjum. Fyrir liggur mat Útlendingastofnunar á því að framangreindu markmiði verði ekki náð með öðru og vægara móti. Kærunefnd telur sig ekki hafa forsendur til að draga í efa þetta mat að svo stöddu. Er það því mat kærunefndar að 12. gr. stjórnsýslulaga standi því ekki í vegi að kærendum verði ekki veittur frestur til að yfirgefa landið. Þá fær kærunefnd ekki séð að 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna komi í veg fyrir að framangreindu úrræði verði beitt í máli kærenda.

Með vísan til framangreinds er fallist á það mat Útlendingastofnunar að umsóknir kærenda um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd séu bersýnilega tilhæfulausar, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, og heimilt að veita kærendum ekki frest til að yfirgefa landið sjálfviljugum.

Eins og að framan greinir hefur kærendum verið vísað frá landinu og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar hér á landi. Þá hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að fella niður frest til að kærendur geti yfirgefið landið sjálfviljug. Liggur því fyrir að kærendur dveljist ólöglega í landinu, sbr. a-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og er því heimilt að brottvísa þeim.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga skal ekki ákveða brottvísun ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærendur komu hingað til lands ásamt barni sínu og sóttu um alþjóðlega vernd þann 3. október 2019. Kærendur kveðast í greinargerð vera í hættu í heimaríki vegna ofbeldis og hótana ótilgreindra aðila í heimaríki. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. október 2019 kom fram að kærendur telji að það sé ósanngjarnt að beita þau endurkomubanni þar sem umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sé ekki bersýnilega tilhæfulaus. Það er mat kærunefndar, í ljósi grundvallar brottvísunar kærenda og með vísan til umfjöllunar kærunefndar um aðstæður í heimaríki kærenda, að ótti kærenda við hótanir í heimaríki, erfiðleikar sem tengjast takmörkunum á ferðum vegna endurkomubanns og góð trú kærenda um réttmæti umsóknar þeirra um vernd vegi ekki nægilega þungt til að talið verði að brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í máli þeirra. Kærendur mótmæltu hugsanlegri brottvísun og endurkomubanni. Þá voru kærendur spurð út í sérstök tengsl við Ísland eða önnur Schengen-ríki og kvaðst M eiga frænku á Ítalíu og K eiga frændfólk í Frakklandi. Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Eru ákvarðanir Útlendingastofnunar er varðar brottvísanir og endurkomubönn því staðfestar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barns þeirra eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their child are affirmed.

 

 

F.h. kærunefndar útlendingamála

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum