Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 167/2021 Úrskurður 16. desember 2021

Mál nr. 167/2021                  Millinafn:       Þorskfjörð

 

Hinn 16. desember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 167/2021 en erindið barst nefndinni 19. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Þorskfjörð er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sé hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Þorskfjörð uppfyllir þannig ákvæði laganna um millinöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Þorskfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum