Hoppa yfir valmynd
22. september 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 450/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 22. september 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 450/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21080022

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 21. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íran (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 26. apríl 2021. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 3. maí 2021. Beiðninni var synjað af kærunefnd þann 17. maí 2021.

Þann 10. ágúst 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Hinn 17. ágúst 2021 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Þá bárust frekari upplýsingar frá stoðdeild hinn 25. ágúst 2021. Athugasemdir og gögn bárust frá lögmanni kæranda þann 22. ágúst 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku kemur fram að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 6. ágúst 2020. Hinn 6. ágúst 2021 hafi því 12 mánuðir verið liðnir frá umsókn hans um alþjóðlega vernd. Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Þar sem þessir 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi enn á Íslandi geri hann þá kröfu að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 22. ágúst 2021, vísar kærandi m.a. til þess að byggt sé á því af hálfu Útlendingastofnunar og stoðdeild ríkislögreglustjóra að kærandi hafi tafið meðferð málsins í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að það sé eðli mála sem þessara að umsækjendur séu mótfallnir flutningi sínum úr landi. Kærandi vísar m.a. til þess að hvergi sé gerð krafa um að umsækjendur fari sjálfviljugir úr landi eða aðstoði með beinum hætti við eigin flutning. Kærandi vísar til þess að heimsfaraldur Covid-19 og þær ráðstafanir sem ríki hafi gert vegna hans, m.a. með því að takmarka heimildir til ferðalaga á milli landa og/eða binda þær ströngum skilyrðum, sé ekki á ábyrgð kæranda. Þá séu ekki fyrir hendi lagaheimildir til þvingaðra líkamsrannsókna í þeim tilgangi að flytja fólk úr landi á grundvelli laga um útlendinga. Það að slík þvingun sé óheimil sé enn fremur ekki á ábyrgð kæranda. Orðalag sem kveði á um að frestur falli niður verði umsækjandi sjálfur talinn bera ábyrgð á töfum máls verði ekki með neinum rökum skilið svo að krafa sé gerð um að umsækjandi stuðli sjálfur að eigin flutningi með beinum aðgerðum, svo sem með því að gangast undir líkamsrannsókn sem engar lagaheimildir séu til að þvinga fólk til. Verði stjórnvöld að bera hallann af því að slíkar þvingunarheimildir séu ekki fyrir hendi. Með vísan til alls framangreinds krefst kærandi endurupptöku málsins á þeim forsendum að 12 mánaða frestur samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé liðinn og að tafir á meðferð málsins séu ekki á ábyrgð kæranda sjálfs.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 6. ágúst 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 6. ágúst 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 17. ágúst 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda kemur fram að þann 21. maí 2021 hafi verkbeiðni borist stoðdeild frá Útlendingastofnun. Þann 9. júní 2021 hafi verið haft samband við kæranda símleiðis með aðstoð túlks og kærandi boðaður til viðtals þann 11. júní 2021. Þann 11. júní 2021 hafi kærandi mætt til viðtals þar sem honum hafi verið tjáð um stöðu hans á Íslandi og kannað viðhorf hans til að fara sjálfviljugur til Grikklands. Kærandi hafi greint frá því að hann ætli ekki að vinna með íslenskum yfirvöldum og að hann hafi rifið gríska vegabréfið sitt og dvalarleyfisskírteini við komuna til Ísland til að undirstrika að hann ætli ekki aftur til Grikklands. Þann 16. júní 2021 hafi verið haft samband við kæranda og hann spurður hvort hann vilji fara í Covid-19 sýnatöku eða í bólusetningu og fara svo til Grikklands. Hann hafi kvaðst ekki vilja gera það. Þann 24. júní 2021 hafi verið haft samband við hann aftur og hann spurður hvort hann ætli að vinna með íslenskum yfirvöldum. Kærandi hafi neitað að gera það. Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 17. ágúst 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð kæranda kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hafi umsækjandi ekki viljað fara af landi brott og margsinnis neitað því að fara í sýnatöku. Útlendingastofnun líti því svo á að kærandi hafi tafið mál sitt, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Þann 23. ágúst 2021 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild um það hvort kærandi hefði verið boðaður í Covid-19 sýnatöku á ákveðnum fyrirframgefnum tíma þegar til stóð að flytja hann. Samkvæmt svari stoðdeildar, dags. 25. ágúst 2021, hafi ekki verið búið að ákveða nákvæma dagsetningu fyrir sýnatöku kæranda en hann hafi komið til viðtals hjá lögreglu þann 11. júní 2021 og spurður hvort hann vildi fara í sýnatöku. Kærandi hafi neitað allri samvinnu við íslensk yfirvöld.

Af svari frá stoðdeild má því ráða að þau samskipti sem áttu sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því almennt að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til að koma kæranda í Covid-19 sýnatöku var þann 24. júní 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 6. ágúst 2021. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Að mati kærunefndar er ekki hægt að slá því föstu að kæranda hafi með formlegum og skýrum hætti verið tilkynnt um hvar og hvenær hann ætti að mæta í sýnatöku. Við þessar aðstæður telur kærunefnd að það hefði verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti, m.a. í því skyni að fyrirbyggja misskilning og tryggja sönnun, að upplýsa hann með formlegum og sannanlegum hætti um skyldur sínar gagnvart Útlendingastofnun. Kærunefnd telur að líta verði svo á að munnleg almenn yfirlýsing kæranda um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki ein og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Sandra Hlíf Ocares                                                    Bjarnveig Eiríksdóttir

           

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum