Hoppa yfir valmynd
6. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Óttast að milljónir barna fái enga menntun

Ljósmynd: JUOZAS CERNIUS/SAVE THE CHILDREN - mynd

Óttast er að hundruð milljóna barna í fjölmörgum þjóðríkjum standi frammi fyrir því að fá enga formlega menntun á þessu hausti. Samkvæmt nýrri greiningu alþjóðasamtakanna Save the Children (Barnaheill) eru ýmsar skýringar á þessu ófremdarástandi, meðal annars loftslagsbreytingar, skortur á bóluefnum gegn COVID-19, hrakningar, árásir á skóla og skortur á netsambandi.

Samkvæmt skýrslunni – Build Forward Better – eru menntamál í ólestri í 48 þjóðríkjum, fjórðungi allra ríkja í heiminum. Samtökin benda á að nú þegar þorri barna er að hefja skólagöngu á þessu hausti hafi milljónir barna ekki aðgang að skólastofunni sinni, auk þeirra 258 milljóna barna sem fyrir heimsfaraldurinn voru utan skóla.

Save the Children hvetja stjórnvöld í viðkomandi ríkjum að tryggja skólagöngu barna og „svipta þau ekki framtíð sinni,“ eins og segir í skýrslunni. Af ríkjum þar sem menntun barna er í óvissu má nefna Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Nígeríu, Sómalíu, Afganistan, Suður-Súdan, Súdan, Malí og Líbíu, auk þess sem verulega skorti á viðunandi menntun barna í Sýrlandi og Jemen.

Fram kemur í skýrslunni að áætlað sé að 10 til 15 milljónir barna eigi á hættu að snúa ekki aftur í skóla vegna efnahagslegra áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Foreldrar hafi margir hverjir tekið börn úr skólum og komið þeim í vinnu og mörg dæmi séu um að barnungar stúlkur séu þvingaðar í hjónabönd. Bent er á að loftslagsbreytingar hafi leitt til lokunar skóla vegna skemmda í ofsaveðrum og að margar barnafjölskyldur hafi flúið heimkynni sín vegna öfga í veðurfari. Allt leiði þetta til óvissu um menntun barna.

Alþjóðasamfélagið er hvatt til þess að bregðast við og tryggja fátækum börnum aðgang að góðri menntun því „réttur barna til menntunar glatast ekki þótt neyðarástand skapist,“ eins og haft er eftir Inger Ashing framkvæmdastjóra Save the Children.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum