Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Jafnréttisvaktin skilar áfangaskýrslu

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherraJafnréttisvaktin hefur skilað Ástu R. Jóhannesdóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, áfangaskýrslu um áhrif efnahagsþrenginganna á karla og konur. Ráðherra skipaði vinnuhóp jafnréttisvaktarinnar í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar í febrúar síðastliðnum enda brýnt að koma í veg fyrir að það árferði sem nú ríkir komi niður á jafnrétti kynjanna.

Í áfangaskýrslu jafnréttisvaktarinnar er lögð áhersla á mikilvægi þess að stjórnvöld hafi ávallt, nú sem endranær, jafnréttis- og kynjasjónarmið að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku. Fjallað er um ýmsa þætti sem vaktin leggur áherslu á eins og stöðu kynjanna á vinnumarkaði, viðbrögðum karla og kvenna við atvinnuleysi, félagslegum áhrifum efnahagsþrenginganna og hugsanlega aukningu á ofbeldi á heimilum. Þá leggur jafnréttisvaktin áherslu á mikilvægi þess að kynin hafi jafna möguleika til áhrifa í endurreisn íslensks samfélags.

Jafnréttisvaktin leggur meðal annars áherslu á eftirfarandi atriði í áfangaskýrslu sinni:

  • Að stjórnvöld hugi að áhrifum ákvarðana sinna á stöðu kynjanna og þá ekki síst ákvarðana sem tengjast breytingum í ríkisfjármálum.
  • Að fornvarna- og viðbragðsáætlun verði lögð fram vegna hættu á auknu ofbeldi í nánum samböndum. Reynsla erlendis frá sýnir að hættan á slíku ofbeldi aukist samfara langvinnu atvinnuleysi og erfiðri skuldastöðu.
  • Að við þróun félagsvísa velferðarvaktarinnar verði kynjasjónarmið höfð að leiðarljósi og að sérstakur jafnréttisfulltrúi komi að því starfi.
  • Að atvinnuskapandi aðgerðir gagnist bæði konum og körlum.
  • Að störf hjá hinu opinbera verði varin.
  • Að hugsanlegar breytingar á heilbrigðisþjónustu taki mið af ólíkum þörfum kynjanna og þess gætt að umönnun sjúklinga auki ekki álagið á heimilin en líklegra þykir að ólaunuð umönnun aðstandenda lendi frekar á konum en körlum.
  • Að starf jafnréttisfulltrúa í ráðuneytum verði eflt.
  • Að aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að sporna við mansali verði hrundið af stað hið fyrsta enda líkur á því að mansal aukist víða um heim í kjölfar fjármálakreppunnar.
  • Sérstaklega þarf að huga að þörfum atvinnulausra karla sem eiga frekar á hættu en konur að einangrast félagslega og eru ólíklegri til að nýta vinnumarkaðsúrræði sem eru í boði.

Bryndís Ísfold HlöðversdóttirHlutverk jafnréttisvaktarinnar er að safna upplýsingum um áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna og vera stjórnvöldum til ráðgjafar um jafnréttismál til að tryggja að við endurreisn íslensks efnahagslífs og uppbyggingu faglegra stjórnunarhátta verði jafnrétti kynjanna haft að leiðarljósi. Á vefsvæði jafnréttisvaktarinnar eru upplýsingar um verkefni nefndarinnar, ásamt skýrslum, greinum og tölfræði sem varðar jafnréttismál og stöðu kynjanna.

Formaður jafnréttisvaktarinnar er Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra. Aðrir nefndarmenn eru Kolbeinn Stefánsson, Sigurður Guðmundsson, Helga Jóhannesdóttir, Gunnar Alexander Ólafsson, Tryggvi Hallgrímsson og Hildur Jónsdóttir.

Skjal fyrir Acrobat ReaderÁfangaskýrsla jafnréttisvaktarinnar

(PDF, 392KB)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum