Hoppa yfir valmynd
2. mars 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntastefna 2030 – drög í opið samráð

Markmið stjórnvalda með mótun menntastefnu til ársins 2030 er að veita framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju og árangur í umhverfi þar sem allir skipta máli og allir geta lært. Drög að þingsályktunartillögu um menntastefnu eru nú til umsagnar í Samráðsgátt og er skilafrestur umsagna 13. mars nk.

„Drögin sem við kynnum nú eru mótuð í breiðu samstarfi, meðal annars með aðkomu fulltrúa skólasamfélagsins sem þátt tóku í fundaröð ráðuneytisins um menntun fyrir alla haustin 2018 og 2019, svo og fulltrúum sveitarfélaga, foreldra, nemenda, kennara, skólastjórnenda, ýmissa hagsmunasamtaka og atvinnulífsins. Við vitum að það eru mikil sóknarfæri og mannauður í menntakerfinu okkar, við höfum á mörgu góðu að byggja en með nýrri menntastefnu stillum við saman strengi til framtíðar. Ég hvet alla áhugasama til þess að kynna sér málið og senda inn sínar umsagnir,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Drögin taka mið af alþjóðlegum sáttmálum, samningum og skuldbindingum svo sem Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þar er menntun fyrir alla eitt lykilmarkmiða með áherslu á að tryggja jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tækifærum til náms alla ævi.

Helstu áherslur eru að: 

  • kennsla og stjórnun menntastofnana verði framúrskarandi,
  • allir hafi jöfn tækifæri til menntunar,
  • námskrá, námsumhverfi og námsmat styðji við hæfni til framtíðar,
  • samábyrgð ríki um framkvæmd og gæði skóla- og fræðslustarfs.

Á grundvelli þessa hafa verið skilgreindar megináherslur sem ráðgert er að útfæra nánar í aðgerðaáætlun sem unnin verður í samvinnu við helstu hagaðila. Sú aðgerðaráætlun verður lykilþáttur í þeirri vegferð stjórnvalda að gera menntun hærra undir höfði og ná þeim markmiðum sem að er stefnt.

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsagnir sínar og ábendingar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum