Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 161/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. apríl 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 161/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19020074

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 26. febrúar 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. febrúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar á Íslandi á grundvelli 1. og 2. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

 

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 30. október 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Möltu. Þann 12. nóvember 2018 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Möltu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013. Í svari frá maltneskum yfirvöldum, dags. 17. desember 2018, kom fram að kæranda hefði verið veitt viðbótarvernd á Möltu þann 15. mars 2014. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 19. desember 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 20. febrúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 26. febrúar 2019 og kærði kærandi ákvörðunina samdægurs til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 8. mars 2019, ásamt fylgigögnum.

 

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Möltu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Möltu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Möltu.

 

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi komið til Möltu árið 2013, þá [...] ára að aldri, eftir tveggja ára dvöl í Líbíu. Í fyrstu hafi hann dvalið í lokaðri varðhaldsmiðstöð á Möltu, í níu mánuði, og síðar í fimm mánuði í flóttamannabúðum. Þegar honum hafi verið veitt viðbótarvernd á Möltu hafi honum verið gert að yfirgefa flóttamannabúðirnar. Kveður kærandi að hann hafi verið heimilislaus í kjölfarið, í fjögur ár. Hann hafi búið á götunni og í yfirgefnum byggingum og fengið fæði frá hjálparstofnunum og kirkjum en enga framfærslu fengið frá maltneskum yfirvöldum. Hann hafi loks flúið slæmar aðstæður á Möltu og sótt um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, þar sem hann hafi dvalið í sex mánuði. Kveður kærandi að hann hafi hlotið viðhlítandi læknisþjónustu í Þýskalandi og verið greindur þar með [...]. Hann hafi enn ekki fengið meðferð við [...] þar sem hann hafi verið sendur til baka til Möltu og ekki fengið læknisþjónustu þar þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um. Þá hafi hann ítrekað sótt um atvinnuleyfi á Möltu en án árangurs. Maltnesk yfirvöld hafi tjáð honum að hann gæti ekki fengið atvinnuleyfi nema hann væri með fast heimilisfang eða lögheimili á Möltu en hann hafi ekki getað uppfyllt skilyrðið þar sem hann hafi verið heimilislaus. Vegna þessa hafi hann hvorki getað framfleytt sér á Möltu né búið sér öruggt heimili. Þá hafi hann orðið fyrir kynþáttahatri á Möltu, þ. á m. líkamlegum árásum og niðrandi athugasemdum vegna [...].

Kærandi kveður þá að heilsa hans sé slæm. Hann hafi verið greindur með [...] á Möltu og [...] í Þýskalandi, sem fyrr segir. Hann fái að sögn „[...]“ á þriggja vikna fresti sem vari í viku í senn. Þá eigi hann erfitt með að neyta matar, finni til mikilla verkja um allan líkamann og geti hvorki staðið né setið af þeim sökum. Hann hafi leitað til læknis á Íslandi og verið tjáð að hann þyrfti á [...] að halda. Kveður kærandi að hann hafi [...] eftir árás fangavarðar þegar hann hafi verið [...] ára í fangelsi í Líbíu. Hann hafi dvalið í eitt og hálft ár í fangelsi í Líbíu og hálft ár í þrælabúðum. Hann beri þess enn merki að hafa orðið reglulega fyrir pyndingum, þ. á m. vatnspyndingum og svefnstoli, og öðru líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Þá rekur kærandi í greinargerð sinni aðstæður og réttindi einstaklinga með alþjóðlega vernd á Möltu, með vísan til ýmissa skýrslna og gagna. Þar komi m.a. fram að réttarstaða einstaklinga með viðbótarvernd á Möltu sé töluvert lakari en einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns, m.a. í tengslum við útgáfu ferðaskilríkja, heilbrigðisþjónustu, möguleika á fjölskyldusameiningu, atvinnuleysistryggingum og aðgangi að ráðningarskrifstofum til aðstoðar við atvinnuleit. Þá reynist innflytjendum á Möltu aðlögun að samfélaginu erfið og endurspeglist það m.a. í mismunun á vinnumarkaði, lélegum vinnuaðstæðum, lágum launum og miklu óöryggi. Í því sambandi séu einstaklingar af [...] uppruna sérstaklega viðkvæmir. Flóttafólk á Möltu glími þá við óviðunandi húsnæðisskort. Kynþáttafordómar og mismunun hafi jafnframt aukist gríðarlega á Möltu með auknum fjölda flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá kveður kærandi að endurnýjun dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar sé erfiðleikum bundin á Möltu, m.a. vegna neikvæðs viðhorfs stjórnvalda, tungumálaörðugleika og íþyngjandi skilyrða á borð við fasta búsetu. Umsækjendur þurfi oftast að bíða í u.þ.b. tvo mánuði eftir slíkri endurnýjun og meðan á biðinni standi geti þeir mætt aðgangshindrunum við öflun grunnþjónustu, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Kærandi kveður að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, m.a. vegna andlegra og líkamlegra veikinda og alvarlegs líkamlegs ofbeldis sem hann hafi sætt. Þá glími hann við [...], [...] og [...].

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð byggir kærandi á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi til sjónarmiða um einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem komi fram í lögskýringargögnum að baki lögum nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga. Þá vísar kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurða nr. 581/2017, 583/2017 og 586/2017 frá 24. október 2017, sem gefi til kynna aukið vægi viðkvæmrar stöðu umsækjenda andspænis sjónarmiðum á borð við skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Af úrskurðunum leiði m.a. að líta þurfi til þess hvort kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna eða almennra aðstæðna í ríkinu. Þá vísar kærandi til þess að kærunefndin hafi litið til heilsufars jafnvel þó að skilyrði reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, um sérstakar ástæður, séu ekki uppfyllt, sbr. úrskurði nefndarinnar nr. 446/2016 frá 10. nóvember 2016 og nr. 139/2017 frá 14. mars 2017. Kærandi vísar þá til úrskurðar kærunefndar nr. 410/2017 frá 11. júlí 2017 þar sem m.a. sé fjallað um heilsufar og heilbrigðiskerfi viðtökuríkis. Síðastgreindi úrskurðurinn gefi til kynna að kærunefndin hafi gert mun minni kröfur um alvarleika, við mat á heilsufari og sérstökum ástæðum, en gerðar séu í framangreindri reglugerð. Reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga, gangi þvert á markmið laga um útlendinga og vilja löggjafans sem lesa megi úr lögskýringargögnum að baki lögum um útlendinga og framangreindum breytingarlögum. Reglugerðin gangi því að ákveðnu leyti gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Þá gerir kærandi athugasemd við ummæli kærunefndar í úrskurði nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018, þar sem komi m.a. fram að ekki verði litið svo á að setning framangreindrar breytingarreglugerðar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga hvað varðar áherslu á Dyflinnarsamstarfið, enda væri ljóst að vilji löggjafans stæði til þess að slíkt samstarf hefði vægi við beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Framangreind fullyrðing sé sett fram af hálfu kærunefndar án tilvísana og ekki rökstudd frekar af hálfu nefndarinnar.

Ástæður kæranda séu sérstakar í ljósi viðkvæmrar stöðu hans, ungs aldurs, uppruna og [...], fortíðar hans, veikinda og erfiðrar lífsbaráttu hans á Möltu. Kærandi mótmælir rökstuðningi í ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að kærandi hafi lýst því yfir að hann sé andlega heilbrigður. Þó að kærandi hafi haldið framangreindu fram, aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun, hafi hann jafnframt haldið því fram í sama viðtali að hann glími m.a. við [...], [...], ótta og [...]. Kærandi vísar þá í áðurnefndan úrskurð kærunefndar nr. 550/2017 frá 10. október 2017, er hafi varðað einstakling með alþjóðlega vernd í Búlgaríu. Umsækjandi í því máli hafi ekki verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu en fengið efnismeðferð hér á landi m.a. með vísan til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Búlgaríu. Sem fyrr segir standi einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu höllum fæti í samanburði við einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns. Því eigi sömu sjónarmið við í máli kæranda en hann byggi á því að staða hans verði verulega síðri en almennings í viðtökuríki.

Þá byggir kærandi á því að endursending hans til Möltu myndi brjóta í bága við grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu (non-refoulement), sbr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Vísar kærandi í því sambandi jafnframt til 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

 

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda veitt viðbótarvernd á Möltu þann 15. mars 2014 og samkvæmt fyrirliggjandi ljósmynd af maltnesku dvalarleyfisskírteini hans hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. mars 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Möltu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall [...] karlmaður. Í framlagðri komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. desember 2018, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið greindur með [...]. Þá kemur fram í komunótu frá 7. desember sl. að engin þekkt lækning sé til við [...] sem kærandi hafi greinst með. Í komunótu, dags. 12. febrúar sl., kemur þá fram að kærandi hafi farið í myndatöku vegna verkja í [...], og í ljós hafi komið að [...] sé í vinstri [...] kæranda sem gæti bent til [...] eða [...] en ekki sé unnt að sýna fram á [...] eða afleiðingar [...] á neðri [...]. [...] sé sennilega upprunalega [...] með áverka á [...]. [...] virðist ekki möguleg en mælt sé með notkun [...] og [...] þegar verkir séu slæmir. Kærandi hafi að eigin sögn glímt við verki í [...], einkum þegar hann [...]. Þá hafi kærandi greint frá því að hann glími við [...] vegna [...] og angistar í ljósi fortíðar sinnar, óvissu um framtíð sína og heilsufars síns. Kærandi hafi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í eitt skipti, sbr. samskiptaseðill dags. 27. febrúar sl. Samkvæmt greinargerð kæranda og endurriti viðtals við hann hjá Útlendingastofnun, dags. 19. desember sl., kveðst kærandi jafnframt hafa verið greindur með [...] og þá hafi hann sætt pyndingum í fangelsi í Líbíu.

Í ljósi gagna málsins, þ. á m. fyrirliggjandi heilsufarsgagna, er það mat kærunefndar að staða kæranda sé þess eðlis að hann hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Möltu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Möltu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• Asylum Information Database, Country Report: Malta (European Council on Refugees and Exiles, 11. mars 2019);

• Malta 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);

• Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Malta (UN High Commissioner for Refugees (UNHCR), júlí 2018);

• Freedom in the world 2018 – Malta (Freedom House, 28. maí 2018);

• ECRI Report on Malta (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);

• Amnesty International Report 2017/18 - Malta (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• National Report on Hate Speech and Hate Crime in Malta 2016 (E-More Project, nóvember 2016);

• National Action Plan Against Racism and Xenophobia (Equality Research Consortium, 2010);

• Upplýsingar af vefsíðum maltneskra yfirvalda: https://deputyprimeminister.gov.mt/en/cbhc/Pages/Entitlement/Health-Entitlement-to-RefugeesMigrants.aspx, www.socialsecurity.gov.mt og www.housingauthority.gov.mt;

• Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna: http://www.unhcr.org.mt;

• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

• Upplýsingar af vefsíðu félagasamtakanna Victim Support: victimsupport.org.mt og

• Upplýsingar af vefsíðum Report Racism Malta og Reporting Hate: www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að einstaklingar með viðbótarvernd (e. subsidiary protection) á Möltu fá útgefin endurnýjanleg dvalarleyfi til þriggja ára í senn. Að framkominni beiðni er að jafnaði fallist á endurnýjun slíkra dvalarleyfa. Í framkvæmd er útgáfa og endurnýjun dvalarleyfa þó erfiðleikum bundin, m.a. vegna skorts á aðgengi að upplýsingum, tafa við vinnslu umsókna, íþyngjandi krafna og neikvæðra viðhorfa opinberra starfsmanna í garð einstaklinga með alþjóðlega vernd á Möltu. Upplýsingar séu ekki alltaf settar fram á tungumáli sem aðilar skilji og þá þurfi umsækjendur um endurnýjun dvalarleyfis m.a. að leggja fram sönnun um núverandi dvalarstað, s.s. leigusamning og afrit af persónuskilríkjum leigusala. Meðan á umsóknarferlinu standi hafi einstaklingar með alþjóðlega vernd þá ekki aðgang að þeirri þjónustu sem þeir eigi rétt á þar sem þeir hafi ekki undir höndum gilt dvalarleyfisskírteini. Útgáfa varanlegra dvalarleyfa sætir ströngum skilyrðum á Möltu svo og veiting ríkisborgararéttar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu njóta almennt ferðafrelsis og fá útgefin vegabréf fyrir útlendinga (e. Alien‘s passport). Framangreind vegabréf eru þó ekki alþjóðlega viðurkennd ferðaskilríki.

Þá er flóttamönnum og einstaklingum með viðbótarvernd almennt heimilt að dvelja um eitt ár í móttökumiðstöðvum en í framkvæmd er þeim mögulegt að dvelja þar lengur að framlagðri beiðni. Beiðnirnar eru metnar í hverju tilviki fyrir sig af stofnun um velferð umsækjenda um alþjóðlega vernd (e. Agency for the Welfare of Asylum Seekers). Þegar réttur til dvalar í móttökumiðstöð hefur verið fullnýttur framkvæmir félagsráðgjafi mat á aðstæðum aðila og reynir að beina þeim inn í félagslega kerfið. Rannsóknir meðal innflytjenda á Möltu hafa þó leitt í ljós að margir þeirra standa frammi fyrir húsnæðisvanda.

Flóttamenn á Möltu hafa aðgang að vinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og maltneskir ríkisborgarar. Einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu hafa einnig aðgang að vinnumarkaðnum en atvinnuþátttaka þeirra kann þó að sæta takmörkunum þegar kemur að tilteknum starfsgreinum, svo sem lögreglustörfum og störfum á vegum maltneska hersins. Þá eiga einstaklingar með viðbótarvernd á Möltu rétt á félagslegri aðstoð til grunnframfærslu en aðgangur þeirra að atvinnuleysistryggingum og lífeyri sætir takmörkunum að einhverju leyti. Handhafar viðbótarverndar njóta jafnframt grunnheilbrigðisþjónustu. Þá gefa fyrirliggjandi landaupplýsingar til kynna að sérhæfð meðferð fyrir þolendur pyndinga eða aðra viðkvæma einstaklinga sé almennt ekki í boði endurgjaldslaust.

Í ofangreindri skýrslu European Commission against Racism and Intolerance frá árinu 2018 kemur m.a. fram að flóttamenn og innflytjendur sæti mismunun á Möltu, þ. á m. á vinnumarkaði. Árið 2010 gáfu maltnesk yfirvöld út aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju og útlendingahatri (e. National Action Plan Against Racism and Xenophobia). Telji einstaklingar á sér brotið geta þeir m.a. leitað til nefndar um opinbera þjónustu (e. Public Service Commission), jafnréttisnefndar (e. National Commission for the Promotion of Equality), umboðsmanns þingsins (e. Parliamentary ombudsman) og dómstóla. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2009 kváðust 29% [...] innflytjenda hafa orðið fyrir ofbeldi, hótunum eða alvarlegu áreiti á grundvelli kynþáttar en yfir 50% árása væru ekki tilkynntar til lögreglu vegna skorts á trausti til yfirvalda. Ekki liggja fyrir aðgreind, opinber gögn um hatursglæpi á Möltu, s.s. um tíðni þeirra, kærufjölda, fjölda mála sem sæta ákæru o.s.frv. Hatursglæpir, þ. á m. á grundvelli kynþáttar, eru refsiverðir skv. maltneskum hegningarlögum. Samkvæmt ofangreindum heimildum skortir þó á eftirfylgni með löggjöfinni, fá mál eru kærð og lágt hlutfall kærumála sætir ákæruferli. Auk þess að leita til lögreglu geta þolendur hatursglæpa leitað til samtakanna Victim Support og jafnframt tilkynnt um hatursglæpi á þar til gerðum vefsíðum, www.reportracism-malta.org og reportinghate.eu. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar á Möltu sem séu þolendur afbrota og tali hvorki né skilji maltnesku geti lagt fram kæru til lögreglu á sínu móðurmáli og eigi rétt á nauðsynlegri aðstoð við það, s.s. túlkaþjónustu. Meðan á rannsókn standi eigi þeir jafnframt rétt á túlkaþjónustu en þurfi þá að greiða fyrir þjónustuna.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Framkvæmd brott- eða frávísunar veiks einstaklings getur talist ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er það einungis í afar sérstökum málum sem aðstæður veikra einstaklinga ná alvarleikaþröskuldi ákvæðisins, n.t.t. aðstæður þar sem sýnt hefur verið fram á að skortur á viðeigandi læknismeðferð í móttökuríki, eða skortur á aðgengi að slíkri meðferð, geri einstakling útsettan fyrir alvarlegri, hraðri og óafturkræfri hnignun á heilsufari sem leitt geti til mikillar þjáningar eða verulegrar skerðingar á lífslíkum, sbr. dóm Mannréttindadómstólsins í máli Paposhvili gegn Belgíu (mál nr. 41738/10) frá 13. desember 2016.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að vegna stöðu hans sem einstaklings með viðbótarvernd á Möltu verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Möltu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Möltu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærandi byggir m.a. á því að sem einstaklingur með viðbótarvernd njóti hann lakari réttarstöðu á Möltu en einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns. Þá hafi hann verið heimilislaus á Möltu og enga aðstoð fengið frá maltneskum yfirvöldum. Kveður kærandi jafnframt að hann hafi ekki fengið atvinnuleyfi og þá hafi hann upplifað fordóma og mismunun á Möltu vegna uppruna síns og [...].

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir að húsnæðis- og vinnumarkaði hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu á Möltu og nýtur almennt sömu réttinda þar um og maltneskir ríkisborgarar. Þá eru takmarkanir á réttindum einstaklinga með viðbótarvernd á Möltu sem kærandi hefur lýst í samræmi við regluverk Evrópusambandsins, þ.m.t. tilskipun nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu. Sem fyrr segir njóta einstaklingar með viðbótarvernd grunnheilbrigðisþjónustu en einstaklingar með stöðu flóttamanns njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og maltneskir ríkisborgarar. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er því nokkur munur á réttarstöðu einstaklinga á Möltu með stöðu flóttamanns annars vegar og viðbótarvernd hins vegar. Aftur á móti er það niðurstaða kærunefndar að þrátt fyrir þessi mismunandi réttindi verði ekki litið svo á að kærandi verði talinn eiga erfitt uppdráttar á Möltu. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár maltneskra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Kærandi kveður að hann hafi ekki fengið læknisþjónustu á Möltu. Líkt og fram hefur komið gefa fyrirliggjandi gögn í málinu og aðrar aðgengilegar upplýsingar til kynna að engin lækning sé til við [...] sem kærandi hafi greinst með. Þá verður ráðið af framlagðri komunótu frá 12. febrúar sl. að [...] vegna óþæginda í [...] sem kærandi glími við virðist ekki möguleg en að mælt sé með [...] og [...]. Kærandi er handhafi alþjóðlegrar verndar og gilds dvalarleyfis á Möltu sem veitir honum aðgang m.a. að grunnheilbrigðisþjónustu. Það er mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017, frá 10. október 2017, og nr. 581/2017, nr. 583/2017 og nr. 586/2017, frá 24. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í umræddum úrskurðum m.a. vegna þess að ekki er um að ræða sömu viðtökuríki. Vegna vísunar kæranda til þess að kærunefndin hafi litið til heilsufars jafnvel þó að skilyrði reglugerðarinnar væru ekki uppfyllt verður tekið fram að við uppkvaðningu úrskurða kærunefndar nr. 446/2016 og nr. 139/2017 hafði reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga, ekki öðlast gildi. Þá kveður kærandi að úrskurður nefndarinnar nr. 410/2017 frá 11. júlí 2017 gefi til kynna að kærunefnd hafi áður, við túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, gert mun minni kröfur um alvarleika við mat á heilsufari og sérstökum ástæðum en gerðar séu í umræddri reglugerð. Í því sambandi verður tekið fram að framangreint mál var ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, en ákvörðun Útlendingastofnunar í málinu var felld úr gildi vegna ófullnægjandi rannsóknar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um aðstæður á Möltu og í Búlgaríu verður þá tekið fram að aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í þessum tveimur ríkjum eru að mati kærunefndar ekki sambærilegar.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 6. nóvember og 19. desember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 30. október 2018.

Athugasemdir kæranda

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar svo og beitingu stjórnvalda á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga. Þá gerir kærandi m.a. athugasemdir við mat stofnunarinnar á stöðu hans.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti máls kæranda og telur ekki tilefni til að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi vegna málsmeðferðarannmarka eða mats stofnunarinnar á tilteknum þáttum málsins. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 29. október 2018 og sótti um alþjóðlega vernd daginn eftir, þann 30. október sl. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                              Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum