Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 678/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 678/2021

Fimmtudaginn 24. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála bréf Vinnumálastofnunar, dags. 9. desember 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 16. desember 2021. Meðfylgjandi kæru var bréf Vinnumálastofnunar, dags. 9. desember 2021, þar sem óskað var eftir tilteknum upplýsingum frá kæranda. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 22. desember 2021, var óskað eftir upplýsingum frá kæranda um hvort fyrir lægi ákvörðun í máli hennar hjá Vinnumálastofnun og vísað til þess að bréf stofnunarinnar frá 9. desember 2021 væri einungis beiðni um upplýsingar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndarinnar 11. janúar 2022. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga segir að ákvörðun, sem ekki bindur enda á mál, verði ekki kærð til æðra stjórnvalds fyrr en málið hefur verið til lykta leitt. Ákvarðanir sem teknar eru um meðferð stjórnsýslumáls og fela ekki í sér endalok málsins, svokallaðar formákvarðanir, verða því ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar.

Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Að því virtu og í samræmi við 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga er það mat úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum