Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2025 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 130/2024 Úrskurður 8. janúar 2025

Mál nr. 130/2024                  Eiginnafn:     Reymar (kk.)

Hinn 8. janúar 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 130/2024 en erindið barst nefndinni 23. desember 2024.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Nafnið Reymar (erlendis víða þekkt sem Raymar) er of öðrum uppruna en nafnið Reimar og er í dag borið af einum Íslendingi sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð. Nafnið tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Reymars, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Reymar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta