Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2018 Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lokið

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á tvíhliðafundi með Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands - mynd

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lauk í dag en Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sóttu fundinn fyrir hönd Íslands. Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, var gestgjafi fundarins. Í sendinefnd Íslands voru einnig Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO, og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneytum.

Boðað var til sérstaks fundar um fjármögnun varnarmála í dag en þar var rætt um þá ákvörðun sem tekin var í Wales 2014 að aðildarríkin stefni að því að 2% af vergri landsframleiðslu renni til varnarmála. Þessi ákvörðun er enn í fullu gildi enda hafa öll ríki bandalagsins aukið framlög sín á þessu sviði.

Leiðtogarnir funduðu enn fremur ásamt leiðtogum Georgíu og Úkraínu þar sem rætt var um öryggi á Svartahafi og sömuleiðis var fundað um málefni Afganistan, ásamt fulltrúum alþjóðastofnana, forseta Afganistan og forystumönnum þeirra ríkja sem hafa staðið að verkefnum í Afganistan.

Katrín fundaði sérstaklega með Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, Kolindu Grabar-Kitarovic, forseta Króatíu, Xavier Bettel, forsætisráðherra Lúxemborg og Daliu Grybauskaite forseta Litháens. Þá tók forsætisráðherra þátt í hliðarviðburði þar sem hún ræddi sérstaklega um öryggi á breiðum grunni og nauðsyn þess að byggja friðsamlegri heim meðal annars með þróunarsamvinnu, aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og auknum jöfnuði og jafnrétti. Katrín fundaði með fulltrúum ICAN en samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels í fyrra fyrir baráttu sína gegn kjarnavopnum. Þá átti forsætisráðherra stuttan fund með fulltrúum Öryggisráðstefnunnar í Munchen. Að lokum hitti Katrín Claire Hutchinson sem er sérstakur fulltrúi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í málefnum kvenna, friðar og öryggis.

„Ísland mun hýsa afvopnunarráðstefnu á vegum Atlantshafsbandalagsins í haust. Við munum bjóða fulltrúum ICAN að taka þátt í hliðarviðburði enda er mjög mikilvægt að samtal eigi sér stað milli ríkja Atlantshafsbandalagsins og þeirra grasrótarsamtaka sem hafa staðið fremst í flokki í baráttunni fyrir afvopnun.“


  • Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lokið - mynd úr myndasafni númer 1
  • Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lokið - mynd úr myndasafni númer 2
  • Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lokið - mynd úr myndasafni númer 3
  • Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel lokið - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum