Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2022 Matvælaráðuneytið

Iðunn og Kári aðstoða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Iðunn Garðarsdóttir og Kári Gautason - mynd

Kári Gautason og Iðunn Garðarsdóttir hafa verið ráðin sem aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Kári hefur störf þann 10. janúar nk. en Iðunn hefur þegar hafið störf og fylgdi ráðherra úr heilbrigðisráðuneytinu.

Kári Gautason er fæddur á Akureyri árið 1989 og ólst upp á Grænalæk í Vopnafirði.

Kári er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann lauk BS prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 2013, og meistaragráðu í búvísindum með áherslu á erfðafræði frá Árósarháskóla árið 2017.

Kári starfaði sem bóndi árin 2013 - 2015 , ráðunautur í loðdýrarækt í hlutastarfi 2013-2017 og var framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs 2018-2020. Seinast starfaði Kári sem sérfræðingur og staðgengill framkvæmdastjóra hjá Bændasamtökum Íslands og sem stjórnarmaður í stjórn Byggðastofnunar. Hann lætur nú af þeim störfum til að gerast aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Í kjölfar kosninganna 2021 hlaut Kári sæti sem annar varaþingmaður VG í Norðausturkjördæmi.

Maki Kára er Gró Einarsdóttir, doktor í félagssálfræði, og saman eiga þau eina dóttur. 

Iðunn Garðarsdóttir hefur starfað sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra frá árinu 2017 og er nú aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn er fædd í Reykjavík árið 1989. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlið, lauk BA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2013, BA prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2015 og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 2017. Iðunn starfaði sem lögfræðingur hjá lögmannsstofunni Juris áður en hún hóf störf í heilbrigðisráðuneytinu.

Iðunn var virk í starfi Röskvu innan Háskóla Íslands, var formaður félagsins árin 2012-2013 og sat í Stúdentaráði og Háskólaráði fyrir hönd fylkingarinnar.

Iðunn er í sambandi með Skúla Arnlaugssyni og saman eiga þau eina dóttur.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum