Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Sendifulltrúi Rauða krossins til Nígeríu

Baldur Steinn Helgason. Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Baldur Steinn Helgason sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi hélt í síðustu viku af stað til Nígeríu. Hann starfar þar í matsteymi Alþjóðasambandi Rauða krossins (IFRC) og stýrir birgðastjórnun fyrir skrifstofu sambandsins í Abuja. Verkefnið tengist neyðarviðbrögðum vegna flóða sem urðu í mið- og suðurhluta Nígeríu á síðasta ári.

Mikil flóð verða oft á þessu svæði og ósjaldan mannskaði. Rúmlega eitt hundrað íbúar fórust í flóðunum síðastliðið haust. Þá flosnuðu upp af heimilum sínum rúmlega ein milljón íbúa í tíu héruðum.

Baldur er þróunar- og skipulagsfræðingur og hefur verið á Veraldarvakt Rauða krossins í rúman áratug eða frá 2005. Hann hefur komið að fjölda verkefna á vegum Rauða krossins á þessum árum. Hann hefur víðtæka þjálfun og þekkingu á þessu sviði og Rauði krossinn hefur meðal annars notið góðs af störfum hans í verkefnum í Indónesíu, Níger, Malí.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum